Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Kynfræðsla miðar að því að styðja og styrkja börn og ungmenni til þess að nota gagnrýna hugsun, vera í jákvæðum samskiptum og taka ábyrgar ákvarðanir þegar kemur að kynhegðun. Niðurstöður rannsókna gefa til kynna að lítið er um kynfræðslu í yngstu bekkjum grunnskóla hérlendis, og námsefni í kynfræðslu er af skornum skammti. Þegar kemur að kynfræðslu fyrir yngsta stig grunnskóla þá eru kennarar oft óöruggir, þá skortir þekkingu á efninu og námsefnið er takmarkað fyrir þennan aldurshóp. Verkefni þetta skiptist í þrjá hluta, fræðilega greinargerð, kennsluleiðbeiningar og námsbók í kynfræðslu fyrir 5-8 ára nemendur. Námsefnið á að styðja við kennara þannig að þeir eigi auðveldara með að miðla kynfræðsluefni og auka vægi fræðslunnar í námi ungra nemenda. Námsefnið á einnig að efla nemendur og auka tilfinninga- og félagsþroska þeirra. Þegar nemendur fá markvissa og greinargóða kynfræðslu frá upphafi skólagöngu sinnar sýna þeir oft jákvæðari kynferðislega hegðun þegar þeir eldast. Þá búa nemendur að góðri þekkingu um ólík málefni sem tengjast kynfræðslu og eru viðhorf þeirra til jafnréttis og fjölbreytileika jákvæðari. Námsefninu „Kraftaverkið ég“ er skipt í átta mismunandi kafla til þess að nemendur öðlist víðtæka þekkingu á efninu. Farið er yfir líkamsímynd, vináttu, styrkleika, sjálfsmynd og fleiri þætti sem styður við unga nemendur í starfi og leik.
Source: Skemman
Author: Rut Ingvarsdóttir 1992-
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029659419
