Work

Landspítalinn: Þarfagreining. Mannafli, árangurstengingar og framleiðni

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari 30 ECTS-eininga ritgerð til MPA gráðu í opinberri stjórnsýslu er gerð þarfagreining á Landspítala með sérstöku tilliti til mannafla. Kerfislegir annmarkar á Landspítala valda skorti á heilbrigðisþjónustu og mannafla. Samhliða þessu steðja áskoranir að heilbrigðiskerfinu á Íslandi og víðar. Því veldur meðal annars öldrun þjóða, skortur á heilbrigðisstarfsfólki, vinnuálag og þreyta meðal mannafla sem fylgdi þjónustuáhlaupi á tímum heimsfaraldurs þegar Kóvid-19 gekk yfir heimsbyggðina. Viðmælendur rannsóknarinnar eru allt stjórnendur á heilbrigðisstofnunum. Allir voru sammála um að mikilvægt væri að grípa til aðgerða til þess að takast á við núverandi aðstæður. Starfandi forstjóri Landspítala, Runólfur Pálsson, telur að kerfisbreytingar séu nauðsynlegar til þess að auka framleiðni þjónustunnar. Niðurstöður þessarar rannsóknar styður þá skoðun og fjallað er um tillögur að aðgerðum sem hægt er að ráðast í. Greining er gerð með tilliti til leikjafræði þar sem afleiddar afleiðingar aukins einkarekstrar og árangurstenginga eru skoðaðar. Af reynslu annarra ríkja að dæma má auka skilvirkni með hvatastýringum. Einkarekstur og útvistun eru ólíkleg til þess að bæta rekstur Landspítala. Gögn rannsóknarinnar benda til að hægt sé að bæta stöðuna með árangurstengingum í formi umbunar til heilbrigðisstarfsfólks. Árangurstengingar eru aftur á móti vandmeðfarið tól þar sem réttar áherslur geta skilað bættri skilvirkni en séu þær innleiddar á rangan máta getur úrræðið haft slæmar afleiðingar.
Source: Skemman
Author: Þórarinn Hjartarson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029837365
Cites: 24
Cited by: 1
Related to: 10