Work

Lífsgæði einstaklinga sem fá viðhaldsmeðferð í læknisfræðilegum tilgangi - skaðaminnkandi lyfjameðferð

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna félagslegan stuðning og þjónustuþörf þeirra sem fá viðhaldsmeðferð eða skaðaminnkandi lyfjameðferð eftir að hafa ánetjast morfínskyldum lyfjum með því að skoða félagslegan stuðning, búsetu og væntingar fólks sem hlýtur slíka meðferð á Íslandi. Umræða síðastliðinna ára um þjónustu í málefnum fólks sem glímir við vímuefnavanda er í auknum mæli farin að byggja á hugmyndafræði skaðaminnkunar. Vaknaði því upp áhugi á að kanna hver reynsla og óskir þeirra sem glíma við morfínvanda væru og hvaða úrræði standa þeim til boða. Sjónum er fyrst og fremst beint að upplifun einstaklinga sem fá viðhaldsmeðferð eða skaðaminnkandi lyfjameðferð á Íslandi, hvaða þjónusta er í boði og hver reynslan er af þjónustunni. Rannsóknin er eigindleg rannsókn og voru tekin viðtöl við tíu einstaklinga sem ánetjast hafa morfínskyldum lyfjum ásamt lækni sem starfar á sjúkrahúsinu Vogi. Viðtölin voru tekin á tímabilinu 1. október til 26. október árið 2023. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til að almenn ánægja sé meðal fólks sem fær viðhaldsmeðferð á Íslandi og snýr gagnrýni að ólíkum lyfjameðferðum sé ábótavant og félagslegur stuðningur sé ekki að fullnægja þörfum þeirra. Að mati viðmælanda sneri stærsta áskorunin að félagslegum aðstæðum og stuðning sem hafði afgerandi áhrif á lífsgæði þeirra sem njóta meðferðarinnar. Lykilorð: lífsgæði, morfínvandi, viðhaldsmeðferð, notendasamráð, valdefling, skaðaminnkun
Source: Skemman
Author: Aníta Runólfsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7029976336
Cites: 38
Cited by:
Related to: 9