Work

„Með klám á heilanum.“ Þróun kynlífsfíknar í nútímasamfélagi

Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð verður fjallað um kynlífsfíkn á fræðilegum grunni þar sem helstu birtingarmyndir, ásamt ólíkum áhrifaþáttum og afleiðingum, verða dregnar fram. Kynlífsfíknin verður m.a. skoðuð út frá fræðilegum kenningum til að varpa ljósi á þá þætti sem hafa áhrif á hegðun eintaklinga og tengsl þeirra við sitt félagslega umhverfi. Aukið aðgengi að kynferðislegu efni á internetinu hefur auðveldað einstaklingum að komast í kynni við þann óendanlega fjölbreytileika sem klámheimurinn býður upp á. Því er hætta á að einstaklingum finnist sá heimur meira spennandi og eyði tíma sínum yfir klámi á netinu í stað þess að eiga í nánum tengslum við aðrar manneskjur. Það getur orðið til þess að einstaklingar einangrist og stundi frekar skyndikynni en að stofna til tilfinningalegs sambands. \nMarkmið ritgerðarinnar er að verkja athygli á þeim afleiðingum sem kynlífsfíkn getur haft í för með sér fyrir einstaklinginn og hans nánasta umhverfi; hvað veldur og hver úrræðin eru. Ýmis meðferðarúrræði eru í boði þar sem starf félagsráðgjafa getur nýst vel í vinnu með kynlífsfíklum. Einnig er SLAA á Íslandi (Sex and Love Addicts Anonymous) með reglulega fundi sem byggðir eru á 12 spora kerfinu og hefur það kerfi gefið góða raun í bataferli margra einstaklinga sem glíma við kynlífsfíkn.
Source: Skemman
Author: Gunnhildur Kjartansdóttir 1985
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7030075760
Cites: 32
Cited by:
Related to: 10