Mat háskólanema á eigin námshæfni í tengslum við sjálfræði þeirra, líðan og félagsleg tengsl í Covid-19
Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar er að kanna forspá líðanar í aðstæðum Covid-19, sjálfræðis, náinna tengsla við fjölskyldu og félagslegra tengsla við samnemendur um mat háskólanemenda á eigin námshæfni. Gögnin sem unnið var með komu úr samstarfsrannsókn milli Háskólans á Akureyri og Vínarháskóla. Þátttakendur voru úr fjórum háskólum og alls tóku 356 manns þátt í rannsókninni. Niðurstöður aðhvarfsgreininga sýndu í fyrsta lagi að því betri sem náin tengsl nemenda voru og því meira sem sjálfræði þeirra var í námi því betri töldu þeir námshæfni sína en forspá félagslegra tengsla var ekki fyrir hendi. Í öðru lagi sýndu niðurstöður að betri líðan í aðstæðum Covid-19 spáði einnig fyrir um betra mat nemenda á eigin námshæfni, að teknu tilliti til fyrrnefndra þátta. Í þriðja lagi sýndu niðurstöður að sjálfræði miðlaði að hluta til áhrifum náinna og félagslegra tengsla á námshæfni. Niðurstöður rannsóknarinnar styðja sjálfsákvörðunarkenninguna um grundvallaráhrifaþætti hæfni og farsældar, m.a. í námi. Rannsóknin er viðbót við rannsóknir sem sýna fram á mikilvægi sjálfræðis og náinna tengsla. Þá felst það nýnæmi í niðurstöðum að sjálfræði miðlar áhrifum félagslegra og náinna tengsla á mat nemenda á námshæfni þeirra. Vonast er til að rannsókn þessi auki almenna umræðu um velferð háskólanema og síðast en ekki síst, að hún skili sér í vinnu náms- og starfsráðgjafa sem eru nemendum til stuðnings meðan á námi stendur.
Source: Skemman
Author: Ólína Freysteinsdóttir 1968-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: COVID-19 and Mental Health
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7030108753
