„Maður staðnar ekki í þessum leikskóla“ : rannsókn á starfsánægju reyndra leikskólakennara
Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Markmið með þessari rannsókn var að að varpa ljósi á þætti í starfsumhverfi leikskólakennara sem hafa áhrif á starfsánægju reyndra leikskólakennara og þá þætti í stjórnunarháttum leikskólastjóra sem hafa áhrif á starfsánægju leikskólakennara. Rannsóknin beindist að hvataþáttum sem hafa áhrif á starfsval. Spurt var hvort innri hvataþættir s.s. áhugi á börnum eða ytri hvataþættir á borð við vinnuaðstæður réðu þar mestu. Um er að ræða eigindlega rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við sjö reynda leikskóla¬kennara með fjölbreytta starfsreynslu innan leikskólageirans. Sett var sem skilyrði að viðmælendur hefðu að lágmarki 10 ára starfsaldur, þar af minnst 5 ár í sama leikskóla. \nHelstu niðurstöður gáfu til kynna að bæði innri- og ytri hvataþættir höfðu áhrif á starfsánægju leikskólakennara. Starfið sjálft er mikilvægur innri hvataþáttur, þar sem leikskólakennarastarfið er í eðli sínu fjölbreytt og lifandi starf, sambland af umönnun og kennslu barna. Viðhorf og gildi leikskólakennara eru einnig mikilvægir hvataþættir og gefa mynd af því hvernig þeir takast á við erfiðleika og hindranir í starfi. Niðurstöður benda einnig til að innri hvataþættir hafi áhrif á starfsval leikskólakennara. Ytri hvataþættir sem hafa áhrif á starfsánægju eru fyrst og fremst starfsmanna¬hald leikskóla og stjórnunarhættir leikskólastjórans. \nAf niðurstöðum má draga þá ályktun að starfsval sé mikilvægur hvataþáttur fyrir leikskólakennara og ánægja með starfsval geti aukið starfsánægju og stuðlað að lengri starfsferli. Einnig má ætla að með fleira fagfólki aukist fagmennskan í skólastarfinu og hafi jákvæð áhrif á starfsánægju leikskólakennara. Mikilvægi faglegs forystuhlutverks leikskóla¬stjórans kemur glöggt fram í máli viðmælenda og full ástæða er til að rannsaka hvernig þeir dreifa valdi og ábyrgð til aðstoðarleikskólastjóra og annarra kennara. Þar sem viðmælendur voru allt konur, væri einnig áhuga¬vert að rannsaka hvort starfsval sé mikilvægur hvataþáttur hjá karlkyns leikskólakennurum og hvort fjöldi fagfólks hafi áhrif á starfsánægju þeirra.
Source: Skemman
Author: Guðbjörg Gunnarsdóttir 1963
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7030201164
