Notkun FINDRISK matstækisins til að meta áhættu á sykursýki tegund 2
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Aukin vitundarvakning hefur verið um allan heim um mikilvægi þess að sporna við þróun á sykursýki tegund 2 (SS2). Það er ekki hægt að horfa fram hjá þeirri staðreynd að algengi SS2 hefur verið að aukast bæði hér á landi og um allan heim. Greining SS2 er að verða algengari hjá fólki sem er enn á vinnumarkaði. Áhættuskimun er forvarnarleið þegar kemur að langvinnum sjúkdómum eins og SS2. Fræðsla til handa þeim sem eru í áhættuhópi við að þróa með sér SS2 er mikilvæg þegar kemur að nauðsynlegum lífsstílsbreytingum. \nTilgangur rannsóknarinnar var að leggja fyrir FINDRISK matstækið til að athuga hvað það væru margir í áhættu við að þróa með sér SS2 á næstu 10 árum í ákveðnu þýði, og að fá upplýsingar um notagildi FINDRISK hér á landi. FINDRISK samanstendur af 8 spurningum, samanlagður stigafjöldi er frá 0 – 21 stig. Viðmiðunargildið til að þróa með sér SS2 var ákveðið ≥9. Þetta er í fyrsta skipti svo vitað sé um að FINDRISK er lagt fyrir hér á landi. \nVið gerð rannsóknarinnar var notast við megindlega rannsóknaraðferð. FINDRISK matstækið var lagt fyrir og mælingar á hæð, þyngd, ummáli mittis, blóðsykri og blóðþrýstingi voru framkvæmdar og LÞS reiknaður. Þátttakendur (N=82) í rannsókninni voru starfsmenn landvinnslu Samherja ehf. á Akureyri, 37 karlar og 45 konur, meðalaldur þátttakenda var 42,6 ár. Svarhlutfallið var 70% (82/117). \nMegin niðurstaða rannsóknarinnar var að 27 þátttakendur (32,9%) voru með ≥9 stig á FINDRISK og teljast því í áhættuhópi við að þróa með sér SS2 á næstu 10 árum. Þegar heildarstig FINDRISK voru borin saman á milli kynja voru konur í aukinni áhættu við að þróa með sér SS2 miðað við karla (p=0,03). Það voru 42,2% kvenna á móti 18,9% karla sem reyndust vera í áhættu við að þróa með sér SS2. Aðhvarfsgreining sýndi að blóðsykur og efri blóðþrýstingsmörk hafa marktæk áhrif á heildarstig FINDRISK. \nHelsta ályktunin er að FINDRISK er hentugt til skimunar á SS2. Það er einfalt í uppsetningu og tekur ekki langan tíma að svara. Það er þörf á reglulegum skimunum hér á landi vegna SS2, aukinni vitundarvakningu og faglegri ráðgjöf frá hjúkrunarfræðingum til þeirra sem eru í aukinni áhættu við að þróa með sér SS2.
Source: Skemman
Author: Jóhanna Margrét Ingvarsdóttir 1969
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: FINDRISK questionnaire, type 2 diabetes, diabetes risk assessment, risk prediction, questionnaire validation, questionnaire validity, Icelandic population, blood pressure, blood glucose, blood pressure medication, alcohol consumption, physical activity, body mass index, cardiovascular risk factors, health behavior change
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7030274734
