Work

Mikilvægi seiglu hjá börnum með ADHD

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar var að varpa ljósi á mikilvægi seiglu hjá börnum með ADHD. Seigla er skilgreind sem hæfni einstaklinga til þess að takast á við mótlæti. Börn með ADHD byggja síður upp seiglu samanborið við önnur börn og eru fjölmargir þættir sem hafa þar áhrif. Seigla er ekki meðfæddur hæfileiki einstakra einstaklinga heldur er hún rakin til þátta sem tengjast félagslega umhverfinu, námsumhverfinu og vitsmunalegum þáttum. \nNiðurstöður ritgerðarinnar sýna að með því að efla verndandi þætti í lífi barna með ADHD er hægt að auka líkur á því að þau nái að byggja upp seiglu. Fjölmargir samverkandi þættir, bæði innri og ytri áhrifavaldar hafa þar áhrif og því ekki hægt að segja með vissu að barnið muni byggja upp seiglu þrátt fyrir inngrip. Niðurstöður benda jafnframt fram á að til þess að hægt sé að byggja upp seiglu hjá þessum börnum þarf að skoða umhverfi barnsins með heildarsýn að leiðarljósi.
Source: Skemman
Author: Margrét Sigurðardóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7030341239
Cites: 67
Cited by:
Related to: 10