Munur á lendingu ríkjandi og víkjandi fótleggjar við hraðar hreyfingar hjá stelpum í íþróttum - Þversniðsrannsókn um lífaflfræðilega þætti krossbandaslita
Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Slit á fremra krossbandi eru alvarleg meiðsli. Algengast er að slitin gerist við íþróttaiðkun og eru þau því mikið áhyggjuefni í íþróttasamfélaginu. Rannsóknir hafa sýnt fram á að stelpur séu 2,4 sinnum líklegri til þess að slíta FK en strákar á sama aldri og að hæsta tíðni slita er hjá ungmennum. Einnig hafa rannsóknir sýnt að stelpur slíta FK oftar á víkjandi fótlegg samanborið við ríkjandi fótlegg en strákarnir sýna öfugt, ekki er vitað af hverju það er. Munur á hreyfimynstri á milli fótleggja getur gefið vísbendingar um af hverju það er munur á tíðni slita milli fótleggja. Í þessari rannsókn verður kiðvægi í hné borið saman milli fótleggja og íþróttagreina, og lóðréttur gagnkraftur jarðar borinn saman milli fótleggja til að sjá hvort munur sé þar á þar sem aukið kiðvægi og aukinn lóðréttur gagnkraftur jarðar eru taldir þættir sem spila inn í krossbandaslit. \nAðferð: Alls tóku 10 þátttakendur þátt í rannsókn, stelpur á aldrinum 15-22 ára sem voru virkar í stefnubreytingaíþróttum. Mælingar fóru fram á Rannsóknarstofu í hreyfivísindum við Háskóla Íslands. Notast var við 12 myndavéla hreyfiföngunarbúnað og kraftplötu við mælingar. Þátttakendur framkvæmdu þrjár mismunandi hreyfingar: Einfætt fallstökk, hliðar saman hliðar stefnubreytingu og gabbhreyfingu, 10 sinnum á hægri fót og 10 sinnum á vinstri fót. Úrvinnsla gagna fór fram í Visual3D og notast var við lágtíðnisíu 20 Hz fyrir myndavélar og kraftplötu. Hæsta gildi lóðrétts gagnkrafts jarðar og kiðvægis í hné innan fyrstu 80 ms frá fyrstu snertingu við jörðu var fundið og þær niðurstöður færðar á Excel formi inn í Jamovi til tölfræðiúrvinnslu. Notast var við blönduð líkön til að greina mun á milli fótleggja og íþróttagreina. Marktektarmörk miðuðust við p < 0,05. \nNiðurstöður: Niðurstöður sýndu fram á að hvorki var munur á hæsta gildi lóðrétts gagnkrafts jarðar á milli fótleggja (p = 0,118), meðaltal 25,392 N/kg (95% ÖM, 23,241-27,542), né á kiðvægi í hné milli íþróttagreina (p = 0,222), meðaltal 0,84745 Nm/kg (95% ÖM, 0,664-1,051). Munur var þó á kiðvægi á milli fótleggja (p = 0,002), meðaltal 0,84750 Nm/kg (95% ÖM, 0,6357-1,059). \nÁlyktun: Niðurstöður þessarar rannsóknar geta ekki skýrt þennan mun á tíðni slita milli fótleggja hjá stelpum út frá því að auknir kraftar verki á víkjandi útlim. Munur var á kiðvægi í hné milli fótleggja en þar sem ríkjandi fótur sýndi hærra gildi eru þær niðurstöður þvert á háu tíðni slita á víkjandi fæti hjá stelpum. Munur á kiðvægi í hné á milli fótleggja gæti þó að einhverju leyti skýrt þennan mun á tíðni slita á milli ríkjandi og víkjandi fótleggs þrátt fyrir að engin bein tengsl liggi fyrir.
Source: Skemman
Author: Dagmar Pálsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Biomedical Engineering
Field: Engineering
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7030427839
