Milli steins og sleggju: Meðferðarúrræði fyrir konur með langvinna verki á meðgöngu
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Langvinnir verkir eru algengt heilbrigðisvandamál sem hrjáir fólk víðs vegar um heiminn. Verkjalyf og viðbótarmeðferðir eru mikilvæg úrræði til að bæta lífsgæði og auka vellíðan einstaklinga. Oft á tíðum eru konur að glíma við langvinna verki á meðgöngu sem geta haft mikil áhrif á þeirra daglega líf og þurfa þær á verkjameðferð að halda til að auka vellíðan. Oft eru verkjalyf verðandi móður nauðsynleg, því gæti þurft að breyta og hagræða lyfjagjöf til að taka tillit til velferðar hennar og fósturs. \nErfitt hefur verið að meta skaðsemi verkjalyfja á fóstur þar sem tilraunastarfsemi á meðgöngu er siðferðislega röng. Margar rannsóknir hafa verið gerðar á dýrum en ekki er alltaf hægt að yfirfæra niðurstöður rannsókna á dýrum yfir á mannfólk. Það má því segja að þekking á skaðsemi verkjalyfja á fóstur sé ekki fyllilega þekkt og margt óvitað enn þann dag í dag. Það hafa þó verið gerðar ýmsar rannsóknir en áreiðanlegasta þekkingin sem við búum yfir í dag kemur frá því sem við lærum af klínískri reynslu. Mikið misræmi er í niðurstöðum rannsókna en hingað til hefur því til dæmis verið haldið fram að parasetamól sé öruggt lyf fyrir barnshafandi konur. Nýjar rannsóknir gefa hins vegar vísbendingar um að lyfið sé kannski ekki eins öruggt og áður var talið. Það sama má segja um önnur lyf á borð við Íbúfen og kódein. Einnig er takmarkað magn til af áreiðanlegum upplýsingum um notkun viðbótarmeðferða á meðgöngu og því þörf á frekari klínískum rannsóknum. \nMikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk búi yfir góðri þekkingu um skaðsemi og gagnsemi verkjameðferðar, til að geta aðstoðað verðandi mæður við að taka ákvörðun um meðferð og upplýst þær um mögulegar aukaverkanir og afleiðingar þeirra. Sum verkjalyf eru talin örugg meðferðarleið fyrir barnshafandi konur en þó eru tímabil á meðgöngu þar sem fóstrið er viðkvæmara fyrir áhrifum lyfja. Því geta ákvarðanir varðandi verkjameðferð barnshafandi kvenna verið krefjandi. \nGott er að hafa í huga að ýmsar viðbótarmeðferðir eru í boði fyrir barnshafandi konur og er þeim ráðlagt að reyna aðrar leiðir áður en leitað er til lyfja og þá ávallt í samráði við lækni. Meta þarf hvert tilfelli fyrir sig og taka ákvörðun með tilliti til ávinnings og áhættu í hvert skipti. Móðirin tekur ávallt lokaákvörðun og þarf að virða þá ákvörðun sem hún tekur. Mikilvægt er að konur ráðfæri sig við heilbrigðisstarfsfólk áður en þær nota lyf eða aðrar meðferðir á meðgöngu. \n \nLykilorð: Verkjameðferð, meðganga, velferð fósturs, siðferði, verkjalyf og viðbótarmeðferðir.
Source: Skemman
Authors: Ásdís Rún Bjarnadóttir, Margrét Yrsa Ólafsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7030569907
