Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Margar rannsóknir hafa sýnt fram á þau jákvæðu áhrif sem hreyfing og íþróttaþjálfun barna hefur í för með sér. Þjálfun getur hinsvegar haft neikvæð áhrif ef álagið er of mikið og endurheimt of lítil og er þá talað um að einstaklingur sé í ofþjálfun. Í þessari ritgerð er farið yfir skilgreiningar ofþjálfunar og fjallað um einkenni hennar og hvernig þau koma til. Farið er yfir hverjir séu í mestu hættu á að mynda einkenni og þær leiðir til þess að meðhöndla einstaklinga í ofþjálfun og hvernig hægt sé að koma í veg fyrir einkennin. Svefn, hvíld og næring gegna þar veigamiklu hlutverki og þá er mikilvægt að stunda öflugar forvarnir og fræða iðkendur, þjálfara og foreldra um hættur ofþálfunnar og leiðir til þess að draga úr þeim.
Source: Skemman
Author: Sigurður Þór Arnarson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7032726158
