Prímadonnur eða góðir liðsmenn? Áhrif valds við stjórnun þekkingarstarfsmanna
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Störf eru nú flóknari en áður og þekkingarstarfsmenn stór hluti vinnuafls. Breytingar hafa orðið á sambandi milli starfsmanna og skipulagsheilda sem eru í auknum mæli háðar þekkingu starfsmannanna. Þetta hefur leitt til nýrra áskorana fyrir skipulagsheildir og stjórnendur þeirra sem standa oft frammi fyrir því krefjandi verkefni að stýra jafningjum sínum. \nRannsóknin fjallar um birtingarmyndir valds í samskiptum stjórnenda og þekkingarstarfsmanna og áskoranir sem stjórnendur standa frammi fyrir á þeim grundvelli. Settar eru fram tvær rannsóknarspurningar sem leitast er við að svara: Hver eru áhrif valds við stjórnun þekkingarstarfsmanna? Hvaða áskorunum standa stjórnendur helst frammi fyrir við slíka stjórnun? \nFarið er yfir fræðilega umfjöllun um stjórnunarkenningar, þekkingarstarfsmenn og vald. Þá er gerð grein fyrir aðferðafræði rannsóknarinnar. Við öflun gagna var stuðst við eigindlega aðferðafræði og tekin hálfopin viðtöl við níu viðmælendur, þrjá stjórnendur og sex starfsmenn, innan þriggja mismunandi skipulagsheilda. Loks er gerð grein fyrir niðurstöðum rannsóknarinnar, þær ræddar og settar í samhengi við fræðilega umfjöllun. \nHelstu niðurstöður gefa til kynna að vald sé mikilvægur áhrifaþáttur við stjórnun þekkingarstarfsmanna og að stjórnendur sem ná árangri treysti á persónuvald sitt, þ.e. sérfræðinga- og áhrifavald, fremur en formlegt vald. Jafnframt gefa niðurstöðurnar til kynna að sérstaða þekkingarstarfsmanna, þar með talið það vald sem þeir búa yfir, geri vissar kröfur til stjórnandans og stjórnunarhátta hans. Stjórnendurnir virtust almennt líta fremur á sig sem jafningja en stjórnanda þekkingarstarfsmanna. Fer það saman við lýsingu Mintzberg (2009) á sambandi stjórnenda og starfsmanna þegar starfsmennirnir búi yfir mikilli færni en þá fari það fremur fram lárétt í formi samstarfs en lóðrétt á milli yfirmanna og undirmanna. Niðurstöður sýna að stjórnun þekkingarstarfsmanna reynir mjög á færni stjórnenda í tjáningu og samskiptafærni að öðru leyti. Kom meðal annars fram að stjórnendurnir beiti valdi sínu með rökum. Gerð er grein fyrir helstu atriðum sem stjórnendur þekkingarstarfsmanna ættu að hafa hugföst. Eiga þau atriði sér verulega samsvörun í stjórnunarháttum mjúkrar mannauðsstjórnunar sem Drucker (2002) telur rétt að beita þegar þekkingarstarfsmenn eiga í hlut. Jafnfamt má leiða af niðurstöðum að þátttökustjórnun eins og henni er lýst af Mintzberg (2015) sé ákjósanleg við þessar aðstæður, en eitt af grunnstefum hennar er að skipulagsheildin sé net samskipta en ekki lóðrétt stigveldi.
Source: Skemman
Author: Elín Blöndal 1966
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Information Systems and Management
Field: Decision Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033289280
