Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Þankaþarfakvarðinn (e. need for cognition scale) metur hversu mikið fólk nýtur þess að takast á við verkefni eða þrautir sem reyna á hugsun þeirra. Kvarðinn hefur verið notaður í margvíslegum rannsóknum og þýddur yfir á mörg mismunandi tungumál. Hingað til hafa verið gerðar tvær tilraunir til þess að þýða kvarðann yfir á íslensku en þær hafa ekki skilað ásættanlegu mælitæki. Það var því markmið þessarar rannsóknar að þýða Þankaþarfakvarðann yfir á íslensku og meta próffræðilega eiginleika hans. Aðgreiniréttmæti kvarðans var skoðað með fylgni við mælikvarða fyrir jákvæða og neikvæða reynslu (e. scale of positive and negative experience [SPANE]) auk þess sem fylgni milli þankaþarfar og frammistöðu í hugrænum verkefnum var skoðuð. Þátttakendur voru 607 (197 karlar, 405 konur og fimm gáfu ekki upp kyn), af þeim tóku 94 einnig þátt í að leysa hugræn verkefni. Próffræðilegir eiginleikar kvarðans í íslenskri þýðingu komu vel út og innri áreiðanleiki var hár (0,87). Leitandi þáttagreining gaf tvo þætti, einn sem innihélt níu jákvætt orðaðar staðhæfingar og annan sem innihélt níu neikvætt orðaðar staðhæfingar. Þvert á tilgátu rannsakenda leiddu niðurstöður í ljós að engin fylgni var á milli þankaþarfar og vinnsluminnis. Búist var við að engin eða lítil fylgni væri milli Þankaþarfakvarðans og SPANE kvarðans, en niðurstöður sýndu meðal sterka fylgni. Niðurstöður úr leitandi þáttagreiningu og samband Þankaþarfakvarðans við bakgrunnsbreytur eru í samræmi við fyrri rannsóknir á upprunalegu útgáfu kvarðans sem og öðrum erlendum útgáfum. Það má því draga þá ályktun að þýðingin hafi skilað réttmætu og áreiðanlegu mælitæki sem nái yfir hugsmíðina þankaþörf.
Source: Skemman
Authors: Rakel Ósk Ólafsdóttir, Margeir Felix Gústavsson, Þórdís Gunnlaugsdóttir Holm
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Field: Decision Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033318343
