Samanburður á áhrifum þreytu á undirstöðukrafta og liðferla í ökkla hjá hlaupurum í skóm og berfættum
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Rannsóknir hafa sýnt að munur er á hlaupahring berfættra hlaupara og hlaupara í hlaupaskóm. Þegar hlaupið er berfætt nota hlauparar frekar framanfótar lendingu en þegar hlaupið er í skóm er algengara að hlauparar noti aftanfótar lendingu. Framanfótar lending setur meira álag á kálfavöðva og hásin en minna álag á hné, samanborið við aftanfótar lendingu. Þegar hlaupið er í skóm verða breytingar á hlaupahring við þreytu sem gætu leitt til meiðsla, en minna er vitað um áhrif þreytu á hlaupahring þegar hlaupið er berfætt. \nMarkmið: Markmið þessarar rannsóknar var að auka skilning á því hvernig þreyta hefur áhrif á undirstöðukrafta og hlaupahring þegar hlaupið er berfætt í samanburði við það að hlaupa í hlaupaskóm. Einnig að kanna hvort sjálfvalinn hlaupastíll viðhaldist betur í skóm eða við berfætt hlaup. Aðferðir: Rannsóknin er víxlsniðs hálfrannsókn með íhlutun. Íhlutunin er stigvaxandi þreyta. Þátttakendur voru 5 áhugahlauparar á aldrinum 33-45 ára. Í fyrstu mælingu var mjólkursýruþröskuldur áætlaður með hlaupaprófi. Í seinni tveimur mælingunum fór hreyfigreining fram. Þá hlupu þátttakendur á hraða sem var 0,2 m/s yfir þeirra mjólkursýruþröskuldi að þolmörkum. Annað skiptið hlupu þeir í hlaupaskóm en í hitt skiptið berfættir. Notast var við þrívíddar hreyfigreiningarkerfi til að safna gögnum og greina. Notuð var fjölþátta blönduð dreifnigreining til að reikna tengsl milli þreytu, skóbúnaðs, undirstöðukrafta og liðferla. \nNiðurstöður: Þreyta hafði áhrif á hlaupahring, liðferla og undirstöðukrafta bæði þegar hlaupið var berfætt og í hlaupaskóm. Marktækt meiri breytingar urðu á hlaupahring og undirstöðukröftum þegar hlaupið var berfætt samanborið við í skóm. Þegar þátttakendur hlupu í hlaupaskóm vörðu þeir lengri tíma í stöðufasa og sveiflufasa auk þess sem skreftími var lengri. Þegar þeir hlupu berfættir lentu þeir með meiri beygju í hné og meiri ristarréttu í ökkla. Skreftíðni var einnig hærri þegar hlaupið var berfætt, bæði í óþreyttu og þreyttu ástandi. Höggtoppur var lægri við berfætt hlaup en aftur á móti var mesti hraði kraftmyndunar meiri. Ályktun: Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að þreyta hafi mismunandi áhrif á hlaupahring og undirstöðukrafta eftir því hvort hlaupið er í hlaupaskóm eða berfætt. Hlauparar gætu verið í aukinni meiðslahættu í þreyttu ástandi þegar þeir byrja að stunda berfætt hlaup og því væri ráðlagt að hlaupa ekki að þreytu í fyrstu skiptin. Þörf er á frekari rannsóknum um áhrif þreytu á hlaupahring þegar hlaupið er berfætt til að auka skilning á áhættuþáttum við berfætt hlaup.
Source: Skemman
Author: Svana Ösp Kristmundsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Biomedical Engineering
Field: Engineering
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033664721
