Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Þessi ritgerð kannar áhrif tækniframfara á mannúðaraðstoð. Þar sem hamfarir og krísur eru sífellt að verða flóknari og tíðari hefur notkun á tækni orðið mikilvægur þáttur í að bæta skilvirkni, samhæfingu og heildarárangur mannúðaraðstoðar. Rannsóknin miðar að því að meta núverandi stöðu tækniinnleiðingar í mannúðargeiranum, greina áskoranir tengdar innleiðingu hennar og skilja áhrif hennar á ýmsa þætti mannúðaraðgerða. \nSöguleg heimildakönnun á notkun tækninnar í mannúðarstarfi gefur ítarlega innsýn inn í þekkingagrunninn sem byggt er á. Aðferðafræði rannsóknarinnar sameinar ítarlega heimildakönnun og forkönnun sem beindist að mannúðarstarfsmönnum. Heimildakönnunin veitir innsýn í þær áskoranir sem notkun tækninnar leiðir af sér, á meðan forkönnunin safnar gögnum um reynslu og skynjun þeirra sem starfa á vettvangi af innleiðingu hennar. Niðurstöður könnunarinnar eru greindar til að meta umfang tækninotkunar á sex sviðum mannúðaraðstoðar. \nNiðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós verulega aukningu í notkun tækni á þeim sex sviðum mannúðaraðstoðar sem voru til skoðunar. Úrbætur í möguleikum til að tengjast Internetinu eru taldar hafa haft mest áhrif. Rannsóknin dregur einnig fram viðvarandi áskoranir, svo sem stafræna gjá, siðferðileg álitamál og netöryggisáhættu, sem hindra fulla nýtingu tækninnar í mannúðaraðstoð. Að auki undirstrikar rannsóknin mikilvægi þess að takast á við þessar áskoranir til að tryggja að tæknin gagnist frekar en skaði viðkvæma hópa. \nRannsóknin leiðir í ljós að umbreytingarmáttur tækninnar fyrir mannúðaraðstoð er mikill en kallar einnig eftir varkárri og stefnumiðaðri nálgun við innleiðingu hennar.
Source: Skemman
Author: Gísli Rafn Ólafsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033788422
