Work

Sorg og missir á meðgöngu, reynsla foreldra og hlutverk heilbrigðisstarfsfólks

Year: 2010
Type: dissertation
Abstract: Sorg og sorgarviðbrögð við missi á meðgöngu eru einstaklingsbundin upplifun. Áhrifin eru margvísleg og geta mótað syrgjendur til framtíðar. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits er að skoða upplifun foreldra af missi á meðgöngu, hvort missir hafi áhrif á framtíðarbarneignir og hvernig heilbrigðisstarfsfólk geti stutt sem best við aðstandendur. Skoðuð voru áhrif af myndatökum og möguleg úrræði eins og hugræn atferlismeðferð í úrvinnslu sorgar. \nHelstu niðurstöður samantektarinnar sýna að foreldrar sem missa barn á meðgöngu eru í mikilli þörf fyrir stuðning í formi nærveru, virkrar hlustunar og eftirfylgni. Sýna rannsóknir fram á að munur er á upplifun mæðra og feðra á missi þó svo að þarfirnar séu jafn mikilvægar. Einnig kemur fram að feður upplifa minni stuðning heldur en mæður eftir missinn. Hlutverk heilbrigðis-starfsfólks er mikilvægt hvað varðar stuðning við aðstandendur og viðurkenningu á missi og sorg þeirra. \nMikilvægt er að heilbrigðisstarfsfólk kynni sér einkenni sorgarinnar, upplifun þeirra sem lenda í henni og tileinki sér frekari úrræði og meðferðir og beiti þeim. Vonast höfundar til þess að þessi úttekt varpi ljósi á það ferli sem foreldrar ganga í gegnum þegar missir á meðgöngu verður.
Source: Skemman
Authors: Amalía Vilborg Sörensdóttir 1974, Kolbrún Sara Larsen 1980
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033833225
Cites: 45
Cited by:
Related to: 10