Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Markmið íslenskra stjórnvalda á hverjum tíma hefur m.a. verið að leitast við að beita skynsamlegri hagstjórn til að draga úr óhóflegum hagsveiflum og skapa skilyrði fyrir háu atvinnustigi í landinu. Sú áskorun hefur verið mikil í okkar litla íslenska hagkerfi allt frá stofnun lýðveldisins 1944. Íslenskt hagkerfi hefur ávallt átt mikið undir því að verðmætur afli berist á land af Íslandsmiðum. Síldveiðar við Ísland voru nýnæmi sem skapaði mikil útflutningsverðmæti og fjölda nýrra starfa í landinu á sjöunda áratug 20. aldar. Auðlindin hvarf hins vegar af Íslandsmiðum sem hendi væri veifað árið 1967 og mikil áskorun að bregðast við þeim samdrætti. \nÍ þessu verkefni voru talnaleg gögn í aðdraganda og í kjölfar síldarkreppunnar og Covid-19-kreppunnar borin saman. Þróun á fimm þjóðhagsstærðum var skoðuð á hvoru tímabili fyrir sig og fylgni í þróun þeirra reiknuð út milli tímabila. Þessar fimm stærðir voru: \n \n•\tÁhrif á afkomu ríkissjóðs \n•\tVerg landframleiðsla \n•\tViðskiptajöfnuður \n•\tVerðbólga \n•\tAtvinnuleysi. \n \nLögð var fram núlltilgáta um að fylgni væri ekki til staðar milli þessar tveggja tímabila hvað varðar þróun ofangreindra þjóðhagsstærða. \nByrjað er á almennri umfjöllun um kreppurnar tvær í fyrstu tveimur köflunum. Farið verður yfir þann mikla efnahagsvöxt sem átti sér stað meðan síldarinnar og ferða¬manna naut við og leitast er við að greina aðgerðir stjórnvalda í hvoru tilfelli fyrir sig í kjölfar kreppanna. \nNiðurstaðan var sú að töluverður munur er á þessum tveimur kreppum en þó var hægt að finna ákveðin samkenni milli þeirra. Í báðum tilfellum átti sér stað mikill vöxtur í sköpun nýrra starfa um nokkurra ára skeið og báðar greinarnar lögðust af að stærstum hluta á nokkrum vikum. Aftur á móti kom í ljós að miklu munaði á peningastefnu og ríkisfjármálum á þessum tveimur tímum. Niðurstöðurnar á marktektarprófunum sýndu fram á að ekki væri hægt að hafna núlltilgátunni fyrir verg landsframleiðslu og verðbólgu. Þegar þetta er ritað ríkir enn mikil óvissa hjá rekstraraðilum í ferðaþjónustu og tengdum greinum þar sem Covid-faraldurinn er enn í útbreiðslu í heiminum og ekki er hægt að álykta hvenær og hvort atvinnutækifæri og tekjuöflun í íslenskri ferðaþjónustunái sínum fyrri hæðum. Á 20. öldinni reyndist glíman við verðbólgu vera viðvarandi áskorun stjórn¬valda en með aukinni samstöðu leiðtoga hagsmunasamtaka og stjórnmálamanna á 21. öldinni hefur náðst að skapa aukinn stöðugleika með samræmdari og virkari hagstjórn en áður.
Source: Skemman
Author: Valdimar Orri Einarsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Economics and Econometrics
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033871940
