Work

Reynsla af fóstri: Aðdragandi fósturráðstöfunar og upplifun fyrrum fósturbarna af afskiptum barnaverndaryfirvalda

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á reynslu og upplifun einstaklinga sem hafa verið í fóstri eða hafa verið vistaðir utan heimilis á barns- og/eða unglingsaldri. Rannsóknin var gerð í þeim tilgangi að kanna afdrif uppkominna fósturbarna og varpa ljósi á reynslu þeirra svo unnt sé að bæta aðstæður fósturbarna í framhaldi af því. Leitast var eftir að skoða hver upplifun fyrrum fósturbarna var af afskiptum barnaverndaryfirvalda og aðdraganda fósturs og eins meðan á fóstrinu sjálfu stóð. Við framkvæmd rannsóknarinnar var notast við eigindlega rannsóknaraðferð, þar sem stuðst var við sjálfboðaliðaúrtak í vali á þátttakendum. Tekin voru 10 einstaklingsviðtöl við einstaklinga sem höfðu reynslu af fóstri eða vistun utan heimilis. Þátttakendur voru á aldrinum 18–77 ára þegar viðtölin fóru fram. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að allir viðmælendur bjuggu við vanrækslu, ofbeldi, áfengis- og vímuefnaneyslu og/eða geðrænar áskoranir foreldra í aðdraganda fósturráðstöfunar. Í nær öllum viðtölunum kom fram sú afstaða að betur hefði mátt standa að aðdraganda fósturráðstöfunar sem einkenndist af skorti á upplýsingum, litlum undirbúningi og skorti á upplýsingum um fósturfjölskylduna sjálfa. Líðan í fóstri var háð þáttum líkt og hvernig gekk að aðlagast fósturheimili, tengslum við fósturforeldra og gæðum eftirlits og stuðnings frá fagaðilum meðan á fóstri stóð. Í þeim tilvikum þegar fósturforeldrar og fagaðilar lögðu sig fram við að mynda tengsl við viðmælendur mátti greina jákvæðari upplifun af fósturráðstöfun. Niðurstöðurnar leiddu einnig í ljós að í mörgum tilvikum hefði undirbúningur fyrir fósturlok mátt vera betur ígrundaður, en viðmælendur upplifðu skort á stuðningi við fósturlok. Þeir bjuggu margir við veikt stuðningsnet í nærumhverfi og gátu því ekki leitað í sömu bjargir og aðrir. Niðurstöður gefa mikilvægar upplýsingar um stuðningsþarfir uppkominna fósturbarna sem vonandi verður unnt að nýta til þess að þróa úrræði með snemmtæka íhlutun að leiðarljósi í þeim tilgangi að bæta líðan fósturbarna og draga úr líkum á vanda á fullorðinsárum. \nLykilorð: fóstur, vistun utan heimilis, barnaverndaryfirvöld, félagsráðgjöf
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033889729
Cites: 31
Cited by:
Related to: 10