Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að athuga hvaða tengsl eru á milli félagslegs stuðnings og streitu annars vegar og félagslegs stuðnings og starfsánægju hins vegar. Rannsakendur settu fram tvær rannsóknarspurningar: „Hvaða tengsl eru á milli félagslegs stuðnings á vinnustað og streitu starfsmanna?“, „Hvaða tengsl eru á milli félagslegs stuðnings á vinnustað og starfsánægju starfsmanna?“ Rannsóknarspurningarnar voru skoðaðar út frá kyni, aldri og menntun starfsmanna. Unnið var með gagnasafn úr könnuninni Heilsa og vellíðan á vinnustað. Sú rannsókn var framkvæmd á árunum 2010 - 2016 en notast var einungis við gögn úr rannsókninni frá árinu 2015. Niðurstöður sýndu að félagslegur stuðningur hafði jákvæð áhrif á streitu og starfsánægju. Þessar niðurstöður benda til að með auknum félagslegum stuðningi minnkar streita og starfsánægja eykst. Félagslegur stuðningur mældist frekar hár en meirihluti starfsmanna taldi sig fá félagslegan stuðning á vinnustað. Konur upplifðu að meðaltali meiri félagslegan stuðning á vinnustað en karlar. Streita dreifðist frekar jafnt meðal þátttakenda en flestir upplifðu stundum streitu á vinnustað. Niðurstöður sýndu að 30 ára og yngri upplifðu meiri streitu en 31 - 40 ára og þátttakendur sem voru með stúdentspróf upplifðu minni streitu að meðaltali heldur en aðrir menntunarhópar. Þátttakendur voru almennt ánægðir í starfi og upplifðu konur meiri starfsánægju en karlar. Niðurstöður sýndu að félagslegur stuðningur á vinnustað skiptir máli þegar kemur að streitu og starfsánægju og getur það spilað stóran þátt í heilsu og líðan starfsmanna. Því er mikilvægt fyrir stjórnendur að huga að félagslegum stuðningi þar sem að hann getur dregið úr streitu og aukið starfsánægju.
Source: Skemman
Authors: Guðrún Birna Gísladóttir 1991, Kolbrún Svava Davíðsdóttir 1988
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033941393
