Work

Sérhæfing og samvirkni innan ytri sjónbarkar

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Sýnt hefur verið fram á upplýsingaþörf mannsins, en hún hefur drifið áfram þekkingaleit frá fornöldum til nútímans og mun gera það áfram um ókomna tíð. Sjónskynjun er ekki bara verkfæri þessarar leitar, heldur getur einnig verið viðfangsefni hennar. Hugmyndir um sjónskynjun hafa þróast yfir tímann og það hafa tækni og rannsóknaraðferðir líka gert. Niðurstaðan er stærðarinnar þekkingarbálkur um eðli umbreytingar ljósbylgja í heildstæða sjónskynjun. Í sjónkerfinu ríkir stigveldisskipulag, þar heilasvæði vinna sífellt úr flóknari upplýsingum. Meginhlutverk fremstu svæða sjónkerfisins felst í grunngreiningu og flokkun upplýsinga. Þessi flokkun leiðir svo til skiptingar í tvær megin brautir þegar komið er að ytri sjónberki. Kviðlæga brautin vinnur að heildrænni skynjun. Úrvinnsla varðar útlitseiginleika hluta, svo sem stærð, lögun og lit, og æðri svæðin koma að heildrænni skynjun hluta eins og andlita og umhverfis. Baklæga brautin, aftur á móti, vinnur að sjónrænni stjórn aðgerða. Svæði hennar eru til dæmis næm á hreyfingu og dýpt og spila lykilhlutverk í því að stjórna hreyfingum út frá sjónrænum upplýsingum. Samvirkni milli brautanna virðist þó vera nauðsynleg, þar sem að til þess að grípa bolta er æskilegt að hafa upplýsingar um hreyfingu hans sem og stærð og lögun. Rannsóknir hafa sýnt fram á aragrúa tenginga á milli brautanna. Hér er leitast eftir því að kanna samræmi eldri hugmynda um sjónskynjun við nútíma þekkingu, skýra uppbyggingu ytri sjónbarkar, sérhæfingu heilasvæða hans og greina frá samvirkni brautanna tveggja.
Source: Skemman
Authors: Melkorka Arnarsdóttir, Páll Jakobsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033960627
Cites: 395
Cited by:
Related to: 10