Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Í rannsókninnni er skoðað hvernig stelpur í unglingadeild grunnskóla upplifa stærðfræði og hvort stærðfræði spili hlutverk í framtíðarsýn þeirra. Rannsóknin beindist að áhuga og viðhorfi stelpnanna á stærðfræði, trú á eigin getu, hvata til að gera vel og hvaða hlutverk stuðningur foreldrar spilar í árangri. Stuðst var við eigindlegar og megindlegar rannsóknaraðferðir. Í eigindlega hlutanum voru tekin viðtöl við 16 stelpur. Ellefu þeirra eru stelpur sem eru sterkar í stærðfræði en fimm þeirra ná ekki hæfniviðmiðum. Með viðtölunum var leitast við að draga reynslu stelpnanna upp á yfirborðið, hvernig þær upplifa stærðfræði og eigin getu í henni. Svör hópanna tveggja voru borin saman til að finna sameiginlega eða ólíka reynslu. Í megindlega hlutanum var stuðst við rafræna spurningakönnun sem lögð var fyrir nemendur í 8.-10. bekk. Í henni var fyrst og fremst verið að leita eftir því hvernig nemendur af báðum kynjum meta eigin getu, viðhorf og áhuga í stærðfræði. Rannsakanda þótti mikilvægt að skoða viðfangsefnið frá mismunandi hliðum og fá staðfestingu á hvort trú á sjálfan sig, viðhorf, stuðningur og því um líkt skipti máli fyrir árangur, eða ekki. \nÍ eigindlega hlutanum kom í ljós mikill munur á stelpunum sem ná árangri í stærðfræði og þeim sem gengur verr. Þær sem ná hæfniviðmiðum eru með skýra framtíðarsýn, vilja standa sig vel og þær upplifa stuðning frá foreldrum. Þær virðast þó flestar tregar að viðurkenna að þær séu góðar í stærðfræði, hafa minni trú á eigin getu en einkunnir segja til um og meðal eiginleika sem þær búa yfir er seigla og samviskusemi. Stelpurnar sem ná ekki hæfniviðmiðum eiga það sameiginlegt að hafa misst trúna á sjálfa sig og eigin getu, sem veldur því að þeim leiðist í tímum og hafa gefist upp á stærðfræði og finnst tilgangslaust að reyna. Úr megindlega hluta rannsóknarinnar kom fram að feður aðstoða meira við heimanám í stærðfræði og að strákar hafa neikvæðara viðhorf gagnvart stærðfræði en stelpur.
Source: Skemman
Author: Linda Hersteinsdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033974988
