Work

Samanburður á alvarleika meltingarvegsblæðinga milli sjúklinga á warfaríni og beinum storkuhemlum

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Rannsóknir hafa sýnt aukna tíðni meltingarvegsblæðinga meðal sjúklinga á beinum storkuhemlum (e. direct oral anticoagulants, DOACs) samanborið við sjúklinga á warfaríni. Enn er óljóst hvort munur sé á alvarleika meltingarvegsblæðinga af völdum þeirra. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvort munur væri á alvarleika meltingarvegsblæðinga milli sjúklinga á warfaríni og beinum storkuhemlum. Efniviður og aðferðir: Notast var við fyrirliggjandi blóðþynningargagnagrunn sem samanstóð af upplýsingum frá lyfjagagnagrunni Landlæknis, dánarmeinaskrá, rafrænum gagnagrunnum Landspítalans, fjórðungssjúkrahúsunum á Akranesi, Akureyri, Ísafirði, Neskaupstað og heilsugæslum víðs vegar um landið. Rannsóknargagnagrunnurinn innihélt upplýsingar um alla sjúklinga á Íslandi sem voru á blóðþynningarmeðferð og hlutu meltingarvegsblæðingu 1. mars 2014 til 28. febrúar 2019. Rannsóknarþýðið samanstóð af sjúklingum sem voru á meðferð með apixaban, edoxaban, dabigatran, rivaroxaban og warfaríni. \nNiðurstöður: Lokaþýðið samanstóð af 485 sjúklingum og voru 223 (46%) á warfaríni og 262 (54%) á DOACs. Sjúklingar á DOACs voru ólíklegri til að fá viðsnúning á blóðþynningarmeðferð sinni samanborið við sjúklinga á warfaríni (gagnlíkindahlutfall [GH] 0,05, 95% öryggisbil [ÖB] 0,02-0,10). Sjúklingar á DOACs voru líklegri til að fá eingöngu stuðningsmeðferð (e. conservative treatment) við blæðingunni samanborið við sjúklinga á warfaríni ([GH] 1,93, 95% [ÖB] 1,33-2,81). Ekki var marktækur munur á hlutfalli sjúklinga sem þörfnuðust innlagnar, hvort tekinn var blóðhagur við komu, meðalblóðrauðafalli, lengd spítalainnlagnar, blóðgjöfum, speglunum sem gerðar voru, inngripum sem gerð voru í speglun, aðgerðum, dánartíðni, ráðgjöf meltingardeildar eða stöðvun blóðþynningar. Ályktanir: Alvarleiki meltingarvegsblæðinga meðal sjúklinga á warfaríni og DOACs reyndist sambærilegur. Þessar niðurstöður eru ólíkar þeim sem birtust í einu rannsókninni sem hefur skoðað alvarleika meltingarvegsblæðinga milli sjúklinga á warfaríni og DOACs, en þar hlutu DOACs sjúklingar síður alvarlegri blæðingar.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7033989973
Cites: 93
Cited by:
Related to: 10