Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi greinir og skoðar hvernig útskúfun hefur þróast og lýst sér í ólíkum samfélögum í gegnum aldirnar. Fjallað er um sögulega þróun útskúfunar sem einnig eru einkennandi í heimi nútímann. Skoða hvernig þær hafa tekið á sig nýja mynd sem leggur áherslu á harða dóma og skjótar niðurstöður. Hugtakið slaufunarmenning er skoðað með tilliti til þeirra sálfræðilegu, félagslegu og siðferðislegra áskorana sem það kann að hafa í för með sér, ekki síst fyrir einstaklinga á opinberum vettvangi. Ritgerðin beinir sérstaklega sjónum sínum að afleiðingum slaufunar. Þá bæði á einstaklinga sem eru slaufaðir og einnig á víðari samfélagslegar afleiðingar. Hver áhrifin eru á tjáningarfrelsi, pólitískar skoðanir og hvernig samfélagið bregst við fyrirbærinu í nútíma menningu. Með rannsóknum á fræðilegum heimildum, dæmisögum og kenningalegri greiningu, felur ritgerðin í sér ítarlega umfjöllun um þetta flókna og margþætta fyrirbæri. \nRitgerðin styðst við rannsóknir í sálfræði og félagsfræði sem tengjast svo sögulegum atburðum. Þetta er gert til að skapa samhengi milli fortíðar og nútíðar. Auk þess býður ritgerðin hugsanlega upp á nýjar hugsanir leiðir til að takast á við útskúfun á uppbyggilegan máta. Þetta er gert til að auka líkur á auknum skilningi, samkennd og félagslegri eflingu.
Source: Skemman
Author: Bryndís Helgadóttir
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034018296
