Starf umsjónarkennara í grunnskólum: „Maður er náttúrulega með erfiða einstaklinga og maður getur líka verið með alveg ótrúlega erfiða foreldra“
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Áherslur í skólastarfi hafa breyst undanfarin ár og ákall hefur verið eftir umbótum innan skólakerfisins í takt við örar breytingar innan samfélagsins. Samkvæmt lögum gegna grunnskólar veigamiklu uppeldis- og velferðarhlutverki við börn og fjölskyldur. Í því samhengi hafa umsjónarkennarar ákveðna sérstöðu í starfi sem gerir þá oft að lykilaðilum í lífi barna þar sem þeir gegna ábyrgðarhlutverki í að efla samstarf við heimili og bera gjarnan meginþunga foreldrasamskipta. Jafnframt eru vísbendingar um að álag á grunnskólakennara hefur aukist á undanförnum árum samhliða auknum verkefnum. Markmið rannsóknarinnar var að rýna í starfsumhverfi umsjónarkennara og varpa ljósi á reynslu þeirra af samskiptum við foreldra og helstu áskorunum í starfi. Ásamt því var sjónum beint að reynslu umsjónarkennara og skoðað hvað þeir telji að þurfi að gerast til að stuðla að aukinni velferð í skólum. Eigindleg rannsóknaraðferð var notuð og viðtöl voru tekin við átta umsjónarkennara í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: „Hver er reynsla umsjónarkennara af samskiptum við foreldra?“ og „Hvaða áskorunum standa umsjónarkennarar frammi fyrir í dag?“. Helstu niðurstöður sýna fram á þörf fyrir fleira fagfólk í skólum við hlið kennara. Þannig væri hægt að leggja aukna áherslu á forvarnir og aukið þverfaglegt samstarf innan skóla og heildrænan stuðning við nemendur jafnt sem kennara. Auk þess sýna niðurstöður að tímabært er að endurskoða áherslur í kennaranámi þar sem kennarar segjast ekki hafa fengið nægilegan undirbúning í námi sínu. Niðurstöður sýna einnig að auka þarf stuðning til skóla þar sem ákveðnar brotalamir virðast vera í skólaþjónustu sveitarfélaga. Þess er vænst að niðurstöður rannsóknarinnar geti nýst við frekari stefnumótun í málaflokknum. \n \n \nLykilorð: Velferð barna, starfsumhverfi kennara, fagmennska og skólafélagsáðgjöf.
Source: Skemman
Author: Laufey Rún Harðardóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034032396
