Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.ed gráðu við deild faggreinakennslu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. Ritgerðin tekur á áhuga nemenda á stærðfræði.Var efni valið eftir samræður við nemendur á elsta stigi grunnskóla þar sem mörgum nemendunum fannst stærðfræði tilgangslaus. Skrif þessi vonandi kveikja áhuga kennara eða kennaranema til að skoða stærðfræðikennslu sína og sjá hvernig megi breyta og bæta kennsluna til að kveikja áhuga nemendanna. En við öflun upplýsinga voru skoðaðar hinar ýmsu greinar sem birtar hafa verið í fræðilegum tímaritum sem tóku á áhuga nemenda svo voru verkefni skoðuð hjá kennurum sem byggja ekki á því að vinna í bókinni. Það er mikilvægt að það sé nánar skoðað hvernig áhugi nemenda eykst og dvínar þegar að það kemur að stærðfræði þar sem við viljum öll að nemendur hafi góðan grunn til að fara út í samfélagið að loknum grunnskóla. \nLokaverkefnið hefst á almennri umfjöllun á stærðfræði, þar er farið í hugtökin sem að stærðfræðikennarar vinna með þó ekki sé listinn tæmandi. Þar er einnig umfjöllun um hæfniviðmið aðalnámskrá grunnskóla. Í næsta kafla þar á eftir er farið í grunninn á stærðfræðinni sem námsgrein í framhaldi af því er skoðuð bók eftir Jo Boaler þar sem hún spyr hvað það hafi með stærðfræði að gera. Farið er síðan í næsta kafla þar sem ólíkir nemenda hópar eru skoðaðir þá bæði þeir sem að hafa sýnt einkenni stærfræðikvíða og þeir nemendur sem teljast bráðgerir. Þaðan er skipt í næsta kafla sem skoðar hvernig vekja megi áhuga á stærðfræði, samþættingu námsgreina, nýtingu tækninnar og mismunandi kennsluaðferðir sem hægt er að nýtast við. Þar er einnig bent á verkefni sem að jafnvel væru til þess fallinn að kveikja áhuga nemenda.
Source: Skemman
Author: Stefanía Sigurbjörg Kristjánsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: mathematics education, primary school mathematics, student interest in mathematics, teacher beliefs about mathematics, teacher self-efficacy, mathematics teaching methods, mathematics curriculum, student motivation, student attitudes toward mathematics, teacher professional development, student-centered assessment, student-centered feedback, student-centered learning environment, student-centered learning materials, student-centered learning activities
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034073411
