Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Samar, frumbyggjaþjóð Fennóskandíu, eru minnihlutahópur í Noregi og hafa samfélög þeirra mátt þola mismunun af hendi norskra stjórnvalda öldum saman. Ein birtingarmynd þess óréttlætis eru áhrif uppbyggingar vindmyllugarða í Noregi á líf og menningu Sama. Í þessari ritgerð verður fjallað um þau áhrif ásamt mikilvægi inngildingar minnihlutahópa í ákvarðanatökuferli þeirra umhverfismála er þá varða. Í fræðikafla ritgerðarinnar verður farið yfir kenningasjónarhorn hreyfinga loftslagsréttlætis, gagnrýninna kynþáttakenninga og eftirlendustefnunnar. Saman mynda hugmyndir þessara kenningaskóla greiningarramma sem varpar ljósi á þá mismunun sem Samar hafa orðið fyrir af hálfu yfirvalda í Noregi í tengslum við uppbyggingu vindmyllugarða þar í landi. Greining leiðir í ljós að vindmyllugarðarnir og framkvæmdir við uppbyggingu þeirra hafa haft neikvæð áhrif á þau samísku samfélög sem stunda hreindýrabúskap á svæðunum en sú iðja er hluti af lagalega varinni menningararfleifð Sama. Þá er ljóst að skortur á inngildingu samískra samfélaga í ákvarðanatökuferli þeirra umhverfismála sem uppbygging vindmyllugarða er og skeytingarleysi norskra yfirvalda gagnvart réttindum Sama hefur ýtt enn frekar undir jaðarsetningu samfélaga þeirra og þar með haft neikvæð áhrif á líf og menningu Sama í Noregi.
Source: Skemman
Author: Bjartey Unnur Stefánsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Anthropology
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034095132
