Work

„Strákar geta haft svo mikil völd.“ Upplifun stúlkna á kynlífsmenningu framhaldsskólanema

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessarar ritgerðar er að skoða upplifun stúlkna á þeirri kynlífsmenningu sem ungt fólk á framhaldsskólaaldri býr við í dag. Rýnt er í þá þætti sem stúlkurnar telja helst hafa áhrif á kynlífsmenningu þeirra svo sem vinahópinn, samskiptamiðla, klám, útlitsdýrkun og kynlífs- og klámvæðingu. Leitast er eftir því að skoða hvort stelpurnar upplifi þrýsting til að stunda kynlíf eða ákveðnar kynlífsathafnir, hvaðan þrýstingurinn kemur og hver birtingarmynd hans er. Einnig er ljósi varpað á upplifun viðmælenda á kynfræðslu og jafnréttisfræðslu í grunn- og framhaldsskólum. Rannsóknin er eigindleg, tekin voru alls tíu viðtöl við þrettán stúlkur þar af níu einstaklingsviðtöl og eitt rýnihópaviðtal. Ein þátttökuathugun var framkvæmd. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að stúlkur upplifi mikinn þrýsting varðandi útlitið, kynþokkann, kynlíf og ákveðnar kynferðislegar athafnir, bæði frá dægurmenningu samfélagsins, vinahópnum og ekki síst strákum. Niðurstöður benda einnig til þess að kynlífs- og klámvæðing hafi veruleg áhrif á kynlíf og „kynlífshandrit“ ungmenna. Viðmælendur telja sterk tvöföld skilaboð ríkja í samfélaginu varðandi kynhegðun stráka og stelpna og stelpur séu undir mun strangara eftirliti en strákar. Kyn- og jafnréttisfræðslu er verulega ábótavant í íslensku skólakerfi samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar. Viðmælendur óska eftir því að fræðslan verði bætt verulega og að innan hennar verði jákvæðum hliðum kynheilbrigðis gert hærra undir höfði.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034122400
Cites: 27
Cited by: 5
Related to: 10