Work

Stefnuviti Speculands í íslensku samhengi: Hagnýt aðferð við innleiðingu breytinga

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Megin tilgangur rannsóknarinnar er að auka skilning á og vitund um aðferðafræði sem kallast Stefnuvitinn sem og kanna hvernig íslenskir stjórnendur hafa notað hann sér til stuðnings við innleiðingu nýrra stefna. Greint er frá hlutverki breytingastjórnunar sem og hlutverki stjórnenda eða leiðtoga í breytingaferli, tegundum breytinga, andstöðu starfsfólks og stjórnenda við breytingar og mögulegum ástæðum fyrir andstöðunni. Einnig er tæpt á helstu kenningum eða líkönum sem breytingastjórnun býr yfir en því næst er fjallað um aðferðafræði Robin Speculand og sérstaklega er tekin fyrir átta þrepa aðferðafræði hans sem kallast Stefnuvitinn. \nVið gerð þessarar rannsóknar var farið ítarlega í bækur Speculand og gerð grein fyrir aðferðafræði hans, hugmyndum og líkönum. Jafnframt var stuðst við eigindlega aðferðafræði og tekin voru viðtöl við tvo viðmælendur. Í viðtölunum var reynt að fá fram mat viðmælenda á aðferðafræði Speculand og greina frá þeirra reynslu af átta þrepum Stefnuvitans. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að Stefnuvitinn er tæki sem nýtist afar vel við innleiðingu nýrra stefna. Þrepin sem heyra undir Stefnuvitann bjóða upp á skýrt skipulag, hvetja til aðgerða og leiðbeina leiðtogum í gegnum hvert skref innleiðingarinnar. Stefnuvitinn er aðgengilegt og þægilegt tæki sem byggist á heilbrigðri skynsemi og mikilvægi forgangsröðunnar og reyndust viðmælendur rannsóknarinnar ánægðir að notast við hann við innleiðingu nýrra stefna.
Source: Skemman
Author: Signý Aðalsteinsdóttir 1979
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034172162
Cites: 16
Cited by:
Related to: 10