Work

"Svona er veröldin okkar sem laðar og lokkar" : útileikir á leikskólalóð

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Eftirfarandi verkefni er lokaverkefni mitt til B.Ed, gráðu í leikskólakennarafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Í verkefninu hef ég gert leikefni að útileikjum á leikskólalóð. Leikefnin nefni ég Uppgötvunarkassa og í hverjum kassa er efniviður sem tengist ákveðnu efni eins og sólskini, frosti eða myrkri og einnig er ég með listsköpunarkassa. \nMeð leikjasafninu fylgir greinargerð um leik barna, hlutverk leikskólakennarans í leik ungra barna, útileiki á leikskólalóð, stefnumörkun yfirvalda og hvað leikskólabörn vilja sjá á góðri leikskólalóð. \nSíðustu fimm ár hef ég unnið á yngstu deild á leikskóla með börnum á aldrinum eins árs til þriggja ára. Hafa börnin verið mér mikill innblástur í náminu og hvatning til að skoða hvað þau geta og hvað fræðin segja mér um þennan spennandi aldur. \nÞað sem mér þótti áhugaverðast með skrifum mínum er hlutverk leikskólakennarans á leikskólalóð, hver stefnumörkunin er og óskir leikskólabarna um leikskólalóð. \nVona ég að leikefnið um Uppgötvunarkassana verði hvatning fyrir aðra leikskólastarfsmenn um útileiki á leikskólalóð til að ýta undir sjálfsprottinn leik ungra barna.
Source: Skemman
Author: Sigrún Unnur Einarsdóttir 1969
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034187616
Cites: 7
Cited by:
Related to: 10