Svefnvandi hjá fullorðnum einstaklingum á einhverfurófi: Byggt á rannsókn ASDEU um þjónustu við fólk á einhverfurófi í Evrópu.
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Þessi rannsókn er byggð á rannsókn Evrópuráðs á þjónustu við fólk með einhverfurófsraskanir í Evrópu. Þátttakendur voru alls 1903 en 114 voru íslenskir svarendur. Þátttakendur skiptust í þrjá hópa, einstaklingar á einhverfurófi (23 frá Íslandi, 631 í heild), aðstandendur einstaklinga á einhverfurófi (47 frá Íslandi, 570 í heild) og fagaðila sem unnið hafa með fullorðnu fólki á einhverfurófi (44 frá Íslandi, 702 í heild). Gagnaöflun fór fram með rafrænni spurningakönnun. Þessi rannsókn skoðar svefnvanda hjá einhverfum einstaklingum út frá þessum þremur sjónarhornum. Tilgátur rannsóknarinnar eru þríþættar, að almennt sé tíðni svefnvanda hærri hjá einstaklingum á einhverfurófinu, heimsóknir til heilbrigðisstofnana vegna svefnvanda fleiri en í almennu þýði sem og að lyfjanotkun sé algengari. Niðurstöður sýndu að svefnvandi var algengari í svörum einhverfra sem og í mati aðstandenda en í almennu þýði sem styður fyrstu tilgátu rannsóknarinnar sem og fyrri rannsóknir. Fylgni fannst á milli stuðningsþarfar og svefnvanda í mati aðstandenda en svefnvandi var algengari hjá einstaklingum með meiri stuðningsþörf. Þá voru spítalaheimsóknir einstaklinga með einhverfu ekki algengari en í almennu þýði sem er áhyggjuefni vegna algengi samsláttarraskana. Þessar niðurstöður styðja ekki við aðra tilgátu rannsóknarinnar. Lyfjanotkun vegna svefnvanda reyndist algengari en í almennu þýði sem styður við síðustu tilgátuna. Ekki fannst marktækur munur á milli landa né hópa sem bendir til þess að vandinn sé alþjóðlegur og samræmi sé í upplifun einstaklinga á einhverfurófi sem og aðstandenda einstaklinga á einhverfurófi.
Source: Skemman
Author: Sigríður Ása Alfonsdóttir 1995
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Sleep and related disorders
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: sleepiness, people with disabilities
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034201905
