Work

Starfsánægja, stjórnun og staðblær : viðtöl við sex skólastjórnendur í grunnskólum á Norðurlandi

Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Starfsánægja er viðfangsefni þessarar rannsóknarritgerðar og hvað það er sem skólastjórnendur telja sig geta gert til að starfsánægja sé til staðar í stofnun þeirra. Eigindleg rannsóknaraðferð var notuð. Tekin voru viðtöl við sex skólastjórnendur á Norðurlandi, þrjár konur og þrjá karla í ólíkum skólum. Skilyrði fyrir vali mínu voru að þátttakendur hefðu mikla reynslu af skólastarfi, hefðu starfað í skóla í minnst tíu ár, væru stjórnendur í grunnskóla á Norðurlandi og hefðu vilja og áhuga til að miðla þeim upplýsingum sem ég leitaði eftir. \n Rannsóknarspurningar mínar eru tvær, annars vegar ,,Hvað telja skólastjórnendur að skipti mestu máli fyrir starfsánægju starfsmanna?“ og hins vegar ,,Hvað reyna þeir að gera til að viðhalda starfsánægjunni?“ \n Niðurstöður sýndu að skólastjórar telji starfsánægju og gleði í starfi afar nauðsynlega á vinnustaðnum. Þar spilar margt inn í og þeir nefndu oftast að sameiginleg sýn verði að vera til staðar, samhugur og samvinna ásamt góðum samskiptum í daglegu starfi. Viðmælendurnir voru sammála um það að stjórnandinn geti haft mikil áhrif á starfsánægju starfsmanna sinna en þó mætti ekki horfa fram hjá því að einstaklingar séu mismunandi. Sumir séu oftast glaðir og ánægðir með vinnustaðinn og samstarfsfólkið á meðan aðrir séu alltaf óánægðir með allt. \n Starfsánægja skiptir afar miklu máli fyrir allt skólastarf. Stjórnandinn þarf að vera meðvitaður um það að skynjun á starfsánægju er einstaklingsbundin og hann þarf að vera næmur á það hvers konar stjórnun og starfsumhverfi stuðlar helst að starfsánægju. \n Rannsóknin leggur grunninn að frekari athugunum á því hvað skiptir máli fyrir starfsánægju og hvað stjórnendur geta gert í því sambandi. Ef stjórnandi leggur ríka áherslu á starfsánægju og góðan staðblæ í stofnuninni, þá hefur sú stofnun gott veganesti inn í framtíðina og þá eru henni allir vegir færir.
Source: Skemman
Author: Dóra Ármannsdóttir 1964
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034204687
Cites: 8
Cited by: 1
Related to: 10