Work

Stjórnun breytinga í kjölfar sameiningar. Grunnskóli Fjallabyggðar

Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Í þessu rannsóknarverkefni er sameining Grunnskóla Ólafsfjarðar og Grunnskóla Siglufjarðar, þegar til varð Grunnskóli Fjallabyggðar, tekin fyrir. Meginmarkmið verkefnisins er að kanna hvernig staðið var að því að innleiða breytingarnar út frá fræðum og kenningum fræðimanna á sviðum breytingastjórnunar. Enn fremur eru aðferðirnar skoðaðar og bornar saman við upplifun og líðan starfsmanna í ferlinu. Beitt var eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við átta starfsmenn stofnunarinnar. Unnið var út frá eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvaða aðferðum var beitt við sameiningu Grunnskóla Ólafsfjarðar og Grunnskóla Siglufjarðar þegar til varð Grunnskóli Fjallabyggðar? Hvernig upplifðu starfsmenn breytingaferlið? \nHelstu niðurstöður þessa rannsóknarverkefnis gefa til kynna að ekki hafi ákveðinni aðferðafræði verið beitt markvisst í sameiningarferlinu. Frásögn viðmælenda á framkvæmd breytinganna gefur þó að mörgu leyti til kynna að vissum þáttum hafi verið stýrt samkvæmt aðferðafræði breytingastjórnunar. Með hliðsjón af niðurstöðum má einnig greina að sameiningarferlið hafi reynst starfsmönnum stofnunarinnar afar tilfinningamikið þar sem ýmsar hindranir urðu á veginum sem álykta má að hefði mátt lágmarka með lengri aðdraganda og nákvæmari undirbúningi.
Source: Skemman
Author: Sylvía Dögg Hjörleifsdóttir 1986
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034213893
Cites: 19
Cited by: 1
Related to: 10