Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Tengsl andlegrar líðanar framhaldsskólanema við skuldbindingu þeirra til náms og skóla voru athuguð. Gögn voru nýtt úr langtímarannsókninni Námsframvinda nemenda og skilvirkni íslenskra framhaldsskólanema, gagnasöfnun fór fram árið 2007. Þátttakendur í þessari rannsókn voru 3.545 nemendur úr öllum framhaldsskólum landsins. Þeir voru á aldrinum 16 til 20 ára, þar af 52% stúlkur. Fjölbreytuaðhvarfsgreining var notuð til að meta forspá andlegrar líðanar nemenda um skuldbindingu þeirra. Tekið var tillit til kyns, fyrri námsárangurs nemenda og menntunar foreldra. Niðurstöður benda til þess að andleg líðan spái fyrir um hegðunarlega, tilfinningalega og vitsmunalega skuldbindingu nemenda. Eftir því sem nemendur sýndu meiri einkenni depurðar og kvíða því minna lögðu þeir sig fram við námið, samsömuðu sig verr skólanum og höfðu minni metnað fyrir því að ljúka námi. Einnig kom fram munur á skuldbindingu og líðan nemenda eftir kyni, fyrri námsárangri og menntun foreldra. Þar sem skuldbinding nemenda hefur forspá fyrir brotthvarf frá námi hafa þessar niðurstöður gildi fyrir náms- og starfsráðgjafa og annað starfsfólk skóla sem vinnur gegn brotthvarfi úr framhaldsskólum landsins og hefur bættan hag nemenda að leiðarljósi.
Source: Skemman
Author: Anna Katrín Ragnarsdóttir 1979
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: student debt, university students, student debt burden, gender differences, first-year students, parental education, student counseling, student guidance, student well-being, student anxiety, student depression, student loneliness, student isolation, school belonging, student self-esteem, student self-confidence, student self-efficacy
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034290292
