Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur: Útbúa handbók fyrir styrktarþjálfun barna og unglinga í knattspyrnu. Verkefninu er skipt upp í fræðilegan inngang og handbók. Fræðilegi kaflinn byggir á erlendum rannsóknum, ritrýndum tímaritsgreinum og fræðibókum um knattspyrnu, styrktarþjálfun og hreyfiþróun barna og unglinga. Ritgerðinni fylgir handbók með hagnýtum upplýsingum og kennslumyndböndum. Æfingarnar voru valdar eftir áhersluþáttum sem áttu við þroskastig, kyn og aldur iðkenda. Æfingarnar eru gerðar til að hámarka hreyfiferla, koma í veg fyrir meiðsli og bæta frammistöðu iðkenda. \nMarkmið: Er að þjálfarar í yngri flokka starfi geti nýtt sér hagnýtar upplýsingar í sinni þjálfun og aflað sér upplýsingar um hina ýmsu þætti sem tengjast þroska barna og unglinga. \nÁvinningur: Vonast er til þess að handbókin muni nýtast knattspyrnuþjálfurum við val á styrktaræfingum með tilliti til aldur og þroska barna og unglinga.
Source: Skemman
Author: Hilmar Andrew McShane
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034292662
