Work

Traust er verðmæti: Áhrif þjónustufalls í heilbrigðisþjónustu á líðan og traust kvenna

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Mikil þjónustugæði lækka kostnað, en traust sjúklinga er tákn um gæði veittrar heilbrigðisþjónustu. Þegar fólk sækir sér heilbrigðisþjónustu væntir það þess að heilbrigðisstarfsfólk fylgi lögum og siðareglum í störfum sínum. Sé raunin önnur getur viðkomandi upplifað þjónustufall sem rýrir traust hans til heilbrigðisstarfsmanna og heilbrigðisstofnunar. Þessi rannsókn skoðar upplifun kvenna af frávikum frá lögum um réttindi sjúklinga og siðareglum í þjónustuveitingu Kvennadeildar Landspítalans, tengsl slíkrar þjónustuupplifunar við traust þeirra til lækna, ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga og vantrausts til Landspítalans. Niðurstöður gætu reynst vegavísir fyrir heilbrigðisstarfsfólk og stjórnendur Landspítalans til að efla traust og þjónustugæði. Beitt var megindlegri aðferðarfræði og spurningalista var deilt rafrænt og 386 konur svöruðu sem hafa sótt þjónustu á Kvennadeild Landspítalans. Niðurstöður sýna að 66,7% kvenna hafa reynslu af einu eða fleiri atvikum sem víkja frá lögum og siðareglum í þjónustu Kvennadeildar, þar sem frávik frá rétti sjúklinga til sjálfræðis eru algengust. Langflestar konur finna til vanlíðan í kjölfar slíkra atvika og mörgum finnst að þarna hafi verið brotið á þeim. Þær bera minna traust til lækna, ljósmæðra og hjúkrunarfræðinga og hafa meira vantraust á Landspítalanum en konur sem hafa ekki upplifað frávik frá lögum um réttindi sjúklinga og siðareglum starfsmanna í þjónustu Kvennadeildar. Slík þjónustuupplifun skýrir 43% af trausti þeirra til læknastéttarinnar, 38% af trausti til hjúkrunarfræðinga og 31% af trausti til ljósmæðrastéttarinnar og 41% af vantrausti í garð Landspítalans. Það er einnig sterk fylgni á milli þess trausts sem konur bera til heilbrigðisstéttanna þriggja og vantrausti þeirra í garð Landspítalans. Stjórnendur og heilbrigðisstarfsfólk ættu að opna umræðuna um áhrif starfshátta sem víkja frá lögum um réttindi sjúklinga og siðareglum á líðan sjúklinga og endurskoða verkferla og starfsvenjur. Þar sem þjónustufall af hendi eins starfsmanns getur rýrt traust til heillar stéttar og stofnunar má segja að það sé til mikils að vinna fyrir heilbrigðisstarfsmenn að standa sameinaðir vörð um þjónustugæði.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034330422
Cites: 156
Cited by:
Related to: 10