Work

Tengsl atferlishagfræðilegra mælinga við meðferðarheldni og árangur í hugrænni atferlismeðferð í hóp

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsóknir hafa endurtekið sýnt fram á ágæti hugrænnar atferlismeðferðar, en hún skilar almennt um 50-60% árangri. Það þýðir hins vegar að 40-50% ná ekki árangri, sem vekur upp spurningar um hvort sameiginlegir þættir hafi áhrif á meðferðarsvörun þeirra. Í þessari rannsókn verða atferlishagfræðilegu hugtökin tímaáhrif valhegðunar og eftirspurn eftir árangri skoðuð í tengslum við meðferðarheldni og árangur. Meiri tímaáhrif valhegðunar vísa til þess að einstaklingar kjósi frekar að fá smærri styrkingu tafarlaust heldur en að bíða eftir stærri styrkingu. Eftirspurn eftir árangri er metin eftir því hversu mikinn tíma einstaklingar eru tilbúnir að leggja í meðferðarvinnu á viku. Fyrri rannsóknir hafa sýnt fram á tengsl tímaáhrifa valhegðunar við ýmsar geðraskanir ásamt því að hafa spáð fyrir um árangur í meðferð við fíkn. Eftirspurn hefur hins vegar ekki, eftir okkar bestu vitund, verið skoðuð í tengslum við geðraskanir en hún hefur samt sem áður verið tengd við fíkn og aðra heilsuspillandi hegðun ásamt því að spá fyrir um hrösun eftir meðferðir. Þátttakendur rannsóknarinnar voru 33 talsins en þeir voru allir skjólstæðingar á Kvíðameðferðarstöðinni. Þátttakendur sóttu ýmist hópmeðferð við almennri kvíðaröskun, félagsfælni, lágu sjálfsáliti eða kulnun. Þeir svöruðu listunum Monetary Choice Questionnaire (MCQ-27) og Demand Questionnaire (DQ) ásamt sjálfsmatslistum sem venjulega eru fylltir út í meðferð. Meðferðarárangur var reiknaður með þessum sjálfsmatslistum og þátttakendum síðan skipt upp eftir því hvort þeir voru yfir eða undir miðgildisárangri. Við útreikninga á meðferðarheldni var einstaklingum skipt upp eftir betri og verri mætingu. Tímaáhrif valhegðunar voru að meðaltali meiri, bæði hjá hópnum með verri mætingu og hjá hópnum sem var undir miðgildisárangri. Sömuleiðis var hópurinn undir miðgildisárangri að meðaltali með minni eftirspurn eftir árangri en hópurinn sem var yfir. Þessar niðurstöður eru í takt við tilgátur rannsóknarinnar ásamt fyrri rannsóknum. Hins vegar var hópurinn sem mætti betur að meðaltali með minni eftirspurn en hópurinn með verri mætingu. Það samræmist hvorki tilgátum né fyrri rannsóknum. Niðurstöður marktektarprófa voru aftur á móti ómarktækar og því er ekki hægt að draga ályktanir um að munur á milli hópa sé raunverulegur.
Source: Skemman
Authors: Laufey Sigríður Guðmundsdóttir, Elín Ylfa Viðarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034360636
Cites: 153
Cited by:
Related to: 10