Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Ávinningur fólks með geðfötlun af þátttöku í tómstundum er mikill en það veldur áhyggjum að tómstundaþátttaka fólks með geðfötlun er minni en annarra. Þessi heimildaritgerð er 10 eininga lokaverkefni til bakkalárgráðu í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands. Meginmarkmið ritgerðarinnar er að fjalla um tómstundaiðkun fólks með geðfötlun. Tilgangurinn er að varpa ljósi á þær tómstundahindranir sem mæta einstaklingum með geðfötlun og hvaða jákvæði ávinningu hlýst af þátttöku í tómstundum. Sjúkdómseinkennin sjálf geta haft áhrif á tómstundaþátttöku geðfatlaðra en samfélagslegir þættir hafa einnig mikil áhrif. Fólk með geðfötlun er m.a. líklegra til að upplifa félagslega einangrun, fátækt og fordóma en allt eru það þættir sem geta hindrað tómstundaþátttöku. Gert verður grein fyrir þeim jákvæðu áhrifum sem iðkun tómstunda getur haft á líðan og líf fólks með geðfötlun. Í ritgerðinni verður varpað ljósi á hvaða þættir styðja við tómstundaþátttöku fólks með geðfötlun og hvað þyrfti að verða leiðarljós í tómstundastarfi sem miðar að þessum hópi fólks. Einnig verður fjallað um leiðir til að mæta betur þörfum fólks með geðfötlun, í tómstundastarfi sem er inngildandi.
Source: Skemman
Author: Jóhanna Rós Norðfjörð Guðmundsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034472080
