Work

Tilgátan um fegurðarforskotið

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni þessarar ritgerðar er að leggja mat á það hvort útlit hafi áhrif á samningaviðræður. Markmiðið er aðallega að skoða hvort fólk með aðlaðandi útlit hefði forskot á minna aðlaðandi fólk þegar horft er til samningaviðræðna og samningagerðar. Um er að ræða eina rannsóknarspurningu en hún er: Er útlit ákvarðandi þáttur í velgengni samningaviðræðna? Tilgáturnar voru tvær. Sú fyrri sem leitast er við að svara er að fólki sem almennt er talið fallegra, sé boðið meira og sé í sterkari stöðu s.s. samningsstöðu en fólk sem er minna aðlaðandi. Í seinni tilgátunni er leitast við að svara því hvort aðlaðandi fólk krefjist meira af öðrum heldur en minna aðlaðandi fólk gerir. Í lok ritgerðarinnar er fjallað um hvort það hafi neikvæð eða geti haft neikvæð áhrif í samningagerð ef einstaklingur er of aðlaðandi, eða of fallegur. Helstu niðurstöður voru þær að almennt er aðlaðandi einstaklingur í sterkari stöðu við samningagerð og í samningaviðræðum en sá sem er minna aðlaðandi.
Source: Skemman
Author: Margrét Gísladóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034500772
Cites: 33
Cited by:
Related to: 10