Work

TRT-námskeið og langvinnir verkir : triggerpunktanudd og núvitund sem meðferðarform við langvinnum verkjum

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Langvinnir verkir eru alvarlegt heilsufarsvandamál í nútíma þjóðfélagi, þeir geta haft hamlandi áhrif á andlega og líkamlega heilsu fólks og skert heilsutengd lífsgæði þeirra. Kostnaður fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið er mikill, bæði hvað varðar beinan og óbeinan kostnað. Algengustu meðferðir sem notaðar eru við langvinnum verkjum hafa reynst ófullnægjandi og skortir hagnýt meðferðarform með tilliti til árangurs og kostnaðar. TRTnámskeið samanstendur af núvitund og triggerpunktanuddi, þær aðferðir hafa einar og sér sýnt fram á gagnsemi við langvinnum verkjum. Markmiðið var að skoða hvort samþætting þeirra í meðferðarform þar sem einstaklingar geta framkvæmt æfingarnar sjálfir myndi nýtast sem bjargráð við langvinnum verkjum. Tilgangur rannsóknarinnar var að framkvæma forprófun til að kanna áhrif TRT- námskeiðs á heilsutengd lífsgæði, styrk verkja og áhrif verkja á daglegt líf meðal einstaklinga með langvinna verki. Unnið var úr megindlegum gögnum sem aflað var með spurningalistunum SF-36 og BPI ásamt spurningalista sem hannaður var af rannsakendum og innihélt opnar spurningar um námskeiðið. Niðurstöðurnar sýndu að ekki var marktækur munur á milli mælinga á líkamlegu heilsufari (t(8) = -1,214;p<0,05) en marktækur munur reyndist vera á sálrænu heilsufari (t(8) = -2,428; p<0,041) heilsutengdra lífsgæða, styrk verkja t(8) = 3,556; p<0,05) og hversu mikið verkir trufluðu daglegar athafnir (t(8) = 3,629; p<0,05). Út frá niðurstöðum teljum við að forprófunin hafi sýnt fram á að forsendur séu fyrir því að framkvæmd verði frekari rannsókn til að skoða áhrifin í stærra úrtaki. Lykilorð: Langvinnir verkir, stoðkerfisverkir, bjargráð, heilsutengd lífsgæði, núvitund, triggerpunktar.
Source: Skemman
Authors: Ólöf Ragna Einarsdóttir 1989, Rakel Guðbjörnsdóttir 1980, Sonja Stefánsdóttir 1981
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034534167
Cites: 86
Cited by:
Related to: 10