Work

Villur og flækjustig í íslensku sem öðru máli. Áhrif ílags og áhuga á setningagerð og beygingar

Year: 2016
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Nota þeir sem hafa íslensku sem annað mál almennt einfaldara mál en þeir sem hafa íslensku að móðurmáli? Tengist lengd dvalar á Íslandi færni í setningagerð jafnmikið og hún tengist færni í beygingum? Koma færri villur fram hjá þeim sem hafa lært íslensku lengst og hafa mestan áhuga á íslensku? Þetta er á meðal þeirra spurninga sem eru viðfangsefni verkefnisins, en það tekur til frásagnarmálsýna 14 táninga sem hafa íslensku sem annað mál auk þess sem málsýni 14 táninga sem hafa íslensku að móðurmáli voru athuguð til samanburðar. Flestir þátttakendur höfðu dvalið á Íslandi í meira en sjö ár, en það hefur verið sett sem viðmið þegar kemur að því að ná móðurmálslegri færni í öðru máli. Í tilgátum var gert ráð fyrir því að minna málfræðilegt flækjustig myndi koma fram þrátt fyrir það, og einnig var gert ráð fyrir því að lengd dvalar myndi helst sýna fylgni við færni í setningagerð, en færni í fallmörkun, samræmi og beygingum yrði tengdari áhuga. \n \n Til þess að svara þessum spurninum voru málsýnin handkóðuð: Allar persónubeygðar sagnir voru merktar og bæði aðal- og aukasetningar út frá þeim, en einnig var fall og setningahlutverk allra fallorða merkt. Loks voru skráðar villur í setningagerð, fallmörkun, samræmi og beygingum, auk þess sem merkt var við tilbrigði og notkun ensku. Út frá þessu voru fengnar mælingar á tveimur flækjustuðlum sem mældu flækjustig setninga og flækjustig samræmis, en auk þess var hlutfall allra villutegunda reiknað. Hóparnir voru bornir saman en einnig var athuguð fylgni á milli mælinga málsýnanna og áhrifsbreytanna lengd dvalar (ílagsmagn) og áhugi. \n \n Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þrátt fyrir langan dvalartíma á Íslandi kemur minna málfræðilegt flækjustig fram í máli þeirra þátttakenda sem hafa íslensku sem annað mál. Munurinn var ekki martækur þegar kom að flækjustigi setninga en flækjustuðull samræmis var marktækt lægri hjá þátttakendum sem hafa íslensku sem annað mál. Villur voru almennt mjög fáar og munurinn á milli hópa þegar kom að þeim mældist ekki marktækur. Sú tilgáta að lengd dvalar myndi helst sýna fylgni við færni í setningagerð stóðst, en lítill breytileiki var í mælingum á áhuga þátttakenda og sýndi sú breyta ekki fylgni við neinar mælingar. \n \n Að lokum vakti athygli að þátttakendur sem hafa íslensku sem annað mál notuðu ensku marktækt meira í málsýnum en jafnaldrar þeirra sem hafa íslensku að móðurmáli, þrátt fyrir að enska hafi ekki verið móðurmál neins þeirra. Enskunotkun jókst eftir því sem þeir höfðu verið lengur á Íslandi, en þær niðurstöður undirstrika mikilvægi þess að rannsóknir á tileinkun annars máls séu gerðar á fleiri tungumálum en ensku, bæði vegna þeirrar augljósu staðreyndar að ekki eru öll mál eins, en einnig vegna þeirrar forréttindastöðu sem enska hefur í alþjóðavæddum heimi.
Source: Skemman
Author: Iris Edda Nowenstein 1991
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034605964
Cites: 56
Cited by: 3
Related to: 10