Work

Um lestur : lestur í skóla og þegar heim er komið : hvernig virkjum við börn og unglinga til lesturs?

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð verður fjallað um áhugahvöt og lestur og hvað kveikir áhuga barna í skólum og heima til þess að lesa. Samkvæmt rannsóknum fer lestraráhugi íslenskra grunnskólanemenda minnkandi og lesa færri nemendur bækur sér til skemmtunar (Brynhildur Þórarinsdóttir og Þóroddur Bjarnason, 2010). Hvernig hefur áhugahvötin áhrif á hvort og hvað nemendur lesa? \n\tGerð verður grein fyrir hvað hæfnin lestur inniheldur og hvernig hann þróast með aldrinum. Fjallað er um yndislestur og SSR-aðferðina sem hefur gefist vel í skólastarfi og hvernig kennarar geta notfært sér hana. \n\tEinnig er fjallað um lestrarhvetjandi verkefni sem fræðimenn jafnt sem kennarar hafa unnnið að undanfarin ár til að auka lestur og kveikja áhuga á lestri meðal barna í grunnskóla. \tMikilvægt er hvaða höfundar það eru helst sem börn vilja lesa og hvaða hvatningu þau þurfa til þess að láta ekki deigan síga við lesturinn á sumrin og hvernig bókasöfn geta hjálpað til við að viðhalda áhuganum.
Source: Skemman
Author: Sigurður Óli Þorvaldsson
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034631326
Cites: 25
Cited by:
Related to: 10