Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Mikill kostnaður fylgir ADHD, bæði fyrir mennta-, félags-, og heilbrigðiskerfið og einnig fyrir fjölskyldur. Börn með ADHD eru líklegri en önnur börn til að eiga í samskiptaerfiðleikum við jafnaldra og fjölskyldu, námserfiðleikum, hegðunarvandamálum, ýgi, kvíða, þunglyndi og fíkniefnavandamálum. Um nokkurt skeið hefur talsvert verið um það fjallað á fræðilegum vettvangi hvort hægt sé að byggja greiningu geðraskana hjá börnum á víddum. Þá færist athyglin frá flokkum geðraskana yfir í að skoða staðsetningu barns á samfellu og klínískri merkingu þess. \nHömlun hegðunar og sjálfsagi eru mannlegir eiginleikar sem vinna saman og skarast. Barkley tók saman gögn úr þroskasálfræði, taugasálfræði og taugafræði til að mynda kenningu um ADHD sem tengdi röskunina við vandamál í þróun stýrifærni. Truflanir í stýrifærni valda vangetu barns með ADHD til að hemja og fresta viðbrögðum. Staðhæfingar Barkley's um að hömlun viðbragða skipti meginmáli í vanda barna með ADHD benda til þess að góð mæling á hegðunarstjórn sé nauðsynleg. Flestir listar sem notaðir eru til skimunar á Íslandi eru einkennamiðaðir og spyrja um frávik í hegðun. Markmið þessarar rannsóknar var athugun á frumsömdum atferlislista með staðhæfingum sem lýsa eðlilegri athygli og hegðun. Próffræðilegir eiginleikar listans voru skoðaðir í tveimur gagnasöfnum, fyrst með leitandi þáttagreiningu (N=188) og síðan með staðfestandi þáttagreiningu (N=315). Skoðuð var þáttabygging, þáttaskýring, fylgni og áreiðanleiki. Til að athuga samleitni- og sundurgreinandi réttmæti var skoðuð fylgni þátta frumsamda listans við þætti Ofvirknikvarðans (Attention-deficit Hyperactivity Disorder Rating Scale IV; ADHD Rating Scale) og þætti í atferlislista um styrk og vanda barna (Strengths and difficulties Questionaire; SDQ). \nLeitandi þáttagreining gaf vísbendingar um tvo þætti, hugræna stjórn og hegðunarstjórn, en einnig að hægt væri að skipta hegðunarþættinum í tvo undirþætti, yrta og óyrta hegðun. Þættirnir tveir skýrðu um 65,2% af heildardreifingu atriðanna, alfastuðull þátta var á bilinu 0,95 til 0,97 og fylgni atriða innan þáttar á bilinu 0,43 til 0,86. \nStaðfestandi þáttagreining benti til að tveggja þátta líkan væri besta niðurstaðan. Alfastuðull fyrir þáttinn hugræn stjórn var 0,95 og alfastuðull fyrir þáttinn hegðunarstjórn var 0,96. Alfastuðull fyrir listann í heild er 0,97. Fylgni á milli atriða innan þáttanna var á bilinu 0,37 til 0,83. Samleitni- og sundurgreinandi réttmæti var gott. Frumsamdi listinn hafði háa neikvæða fylgni við þátt ofvirkni á SDQ sem og háa neikvæða fylgni við þættina tvo á Ofvirknikvarðanum. \nNiðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að hægt sé að meta hugsmíðar sem liggja til grundvallar athyglisbresti og ofvirkni á samfelldum matslista. Með nýjum frumsömdum lista er því hugsanlegt að hægt sé að greina mismunandi alvarleika ofvirkni og athyglisbrests hjá börnum. Jafnframt er hugsanlegt að frumsamdi listinn geti gagnast í rannsóknum á undanfara ofvirkni og athyglisbrests hjá börnum mun fyrr en afgerandi einkenni koma fram um ofvirkni og athyglisbrest.
Source: Skemman
Author: Sveinbjörn Yngvi Gestsson 1971
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034663295
