Það er gott að kunna íslensku af því að „það er eitthvað tungumál“: Samanburður á viðhorfum 8–9 ára og 10–12 ára barna til íslensku og ensku með tilliti til aldurs og stafræns ílags
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Tækniframfarir, snjalltækjabylting og alþjóðavæðing nútímans hafa orðið til þess að á Íslandi hefur myndast stafrænt málsambýli íslensku og ensku. Sýnt hefur verið fram á að viðhorf til tungumáls í málsambýli skipti gríðarlega miklu máli þegar rætt er um lífvænleika þess, en í málsambýli tveggja tungumála er ávallt hætta á því að annað tungumálið verði minnihlutamál. Þá skipta viðhorf barna sérstaklega máli en á síðustu árum hefur mikið verið rætt um áhyggjur kennara og foreldra af því að íslensk börn kunni meiri ensku en íslensku eða kjósi jafnvel ensku fram yfir íslensku. Viðhorf íslenskra barna til íslensku eru oft nátengd skólastarfi, t.d. málfræði eða orðaforða, en þau virðast tengja ensku við samskipti og afþreyingu. Markmið þessarar ritgerðar er að skoða og bera saman viðhorf barna til íslensku og ensku eftir aldri og magni á stafrænu ílagi. Það var gert með því að athuga hvort börnin gætu eða vildu útskýra mál sitt þegar þau voru spurð og þá hvaða ástæður þau gáfu fyrir því að gott væri að kunna tungumálin. Bornir eru saman tveir aldurshópar, 8–9 ára og 10–12 ára. Gögn úr viðtalshluta öndvegisverkefnisins Greining á málfræðilegum afleiðingum stafræns málsambýlis voru notuð. Einblínt var á tvær spurningar sem spurðar voru í viðtölunum: „Er gott að kunna íslensku?“ og „Er gott að kunna ensku?“ \nNiðurstöður sýna að báðir aldurshópar tengja ensku aðallega við samskipti en fram kom sá munur að tvö börn í aldurshópnum 10–12 ára með lítið stafrænt ílag tóku sérstaklega fram að þeim þætti mikilvægara að tala íslensku en ensku. Einnig kom í ljós að börn með mikið stafrænt ílag geta eða vilja síður útskýra mál sitt þegar þau eru spurð af hverju þeim þyki gott að tala íslensku og þegar þau gera það eru svör þeirra ekki jafn skýr og barnanna með lítið stafrænt ílag. Fram kom sá munur á viðhorfum eftir stafrænu ílagi að börn með mikið stafrænt ílag tengdu íslensku frekar við málvernd og leiðréttingar og fannst einu barni ekki skipta máli að tala góða íslensku. Börn með lítið stafrænt ílag tengdu íslensku frekar við samskipti. Tólf af þeim fjórtán börnum sem útskýrðu mál sitt tengdu ensku við samskipti. Þetta gæti bent til þess að stafrænt ílag hafi áhrif á viðhorf barnanna til tungumálanna og að börn með mikið stafrænt ílag hafi jákvæðari viðhorf til ensku en íslensku. Er það nokkuð áhyggjuefni enda hafa rannsóknir sýnt fram á að viðhorf barna til tungumála í málsambýli hafi afar mikið vægi hvað snertir framtíð tungumálanna.
Source: Skemman
Author: María Ramos Hilmarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Linguistics and Language
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034756494
