Þverþjóðlegar fjölskyldur: Helstu áskoranir vegna búferlaflutninga.
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Í kjölfar aukinnar hnattvæðingar hafa búferlaflutningar aukist til muna og til verða ný form fjölskylduaðstæðna, m.a. þverþjóðlegar fjölskyldur. Slíkar fjölskyldur eru af ólíkum toga en einkennast af fjölskyldumeðlimum sem búa í tveimur eða fleiri löndum þar sem tengslum og hlutverkum er viðhaldið. Sökum búferlaflutninga á sér stað óhjákvæmilegur aðskilnaður sem getur lagst þungt á tilfinningalíf einstaklinga, bæði þeirra sem flytja búferlum og þeirra sem eftir verða í upprunalandi. Tilfinningar eins og sektarkennd og einmanaleiki losna úr læðingi, átök eiga sér stað innan eigin sjálfsmyndar og tengsl meðal einstaklinga breytast. Markmið ritgerðarinnar er að greina þessar áskoranir og afleiðingar þeirra. Félagsráðgjafar þurfa að hafa ákveðna þekkingu og skilning í vinnu með þverþjóðlegum fjölskyldum þar sem lykilatriði er að beita heildarsýn og veita menningarnæma þjónustu. Lítil áhersla hefur verið lögð á þverþjóðlega félagsráðgjöf hér á landi sem kann að stafa af þeim sökum að lengi vel hefur þjóðin verið nokkuð einsleit. Að sama skapi er þverþjóðleg félagsráðgjöf fremur ný af nálinni og því mikilvægt að efla vitund á þessu sviði, enda er um að ræða sístækkandi hóp. Markmið ritgerðarinnar er þá að kanna hverjar áherslur félagsráðgjafar eru á þverþjóðlegum starfsháttum og hver staðan er hér á landi í þessum efnum.
Source: Skemman
Author: Ísak Herner Konráðsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034989303
