Þýðing og menningarleg aðlögun matstækisins Multidimensional Assessment of Parenting Scale (MAPS)
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Mikilvægt er að meta uppeldishætti sem foreldrar tileinka sér þar sem uppeldi hefur fjölþætt áhrif á börn. Gott og árangursríkt uppeldi getur dregið úr streitu barna sem og bætt heilsu þeirra. Til eru ýmis matstæki sem meta uppeldi og er Multidimensional Assessment of Parenting Scale (MAPS) eitt þeirra. MAPS er yfirgripsmikið matstæki sem gefur vísbendingar um jákvæða og neikvæða uppeldishætti foreldra. Um nýlegt matstæki er að ræða en sýnt hefur verið fram á sterka próffræðilega eiginleika þess með tilliti til áreiðanleika og réttmætis. Tilgangur rannsóknarinnar er að þýða matstækið MAPS á íslensku og laga það að íslenskri menningu. \nAðferð: Rannsóknaraðferð er lýsandi þar sem stuðst er við eigindlega aðferðafræði. Við þýðingu á matstækinu var leiðbeiningum TCA um ákjósanleg vinnubrögð við þýðingu og menningarlega aðlögun sjálfsmatskvarða fylgt. Við val á þátttakendum í djúpviðtöl var notast við hentugleikaúrtak. Tekin voru djúpviðtöl við ellefu foreldra barna á aldrinum 3-17 ára, sem lögðu mat á þýðingu matstækisins. Í gegnum þýðingarferlið var einnig fengið álit sérfræðinga. \nNiðurstöður: Við þýðingu og menningarlega aðlögun matstækisins áttu ákveðin orðatiltæki sér ekki sambærilega hliðstæðu í íslensku málfari. Gerðar voru breytingar á orðalagi nokkurra staðhæfinga í þýðingarferlinu, m.a. eftir djúpviðtöl og álit sérfræðinga. Helstu athugasemdir sem komu fram í djúpviðtölum vörðuðu kynjun staðhæfinga, hugtakið refsing og staðhæfingar um líkamlega refsingu. \nÁlyktanir: Afrakstur rannsóknarinnar er íslensk þýðing matstækisins MAPS sem hefur verið aðlagaður að íslenskri menningu. Höfundar telja að merking staðhæfinga hafi haldið sér við þýðingu skv. TCA-þýðingarferli. Þörf er á forprófun matstækisins til að meta styrk próffræðilega eiginleika þess og hvort íslensk þýðing MAPS sé menningarlega sambærileg upprunalegri útgáfu matstækisins. Vonast er til að hjúkrunarfræðingar geti nýtt sér íslenska útgáfu MAPS við rannsóknir á uppeldi eða vinnu með fjölskyldum. \nLykilorð: Uppeldi, foreldrar, börn, Multidimensional Assessment of Parenting Scale (MAPS), þýðing matstækja.
Source: Skemman
Authors: Aldís Sveinsdóttir 1997-, Helga María Helgadóttir 1998-, Vilborg María Loftsdóttir 1999-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Decision Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7034996486
