Work

Þekking kransæðasjúklinga á kransæðasjúkdómnum : kerfisbundin heimildasamantekt

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Kransæðasjúkdómur er ein algengasta orsök dauðsfalla á Íslandi sem og um allan heim. Sjúkdómurinn er lífsstílstengdur og því er oft hægt að koma í veg fyrir örorku og dauðsföll af völdum sjúkdómsins með lífsstílsbreytingum sjúklinga. Það geta þó verið ýmsar hindranir í vegi einstaklinga sem ætla að breyta lífsstíl sínum. Til þess að einstaklingar nái að breyta lífsstíl sínum varanlega þurfa þeir stuðning og góða þekkingu á sjúkdómnum. Þekking er forsenda þess að einstaklingar breyti lífsstíl sínum. Til að hámarka þekkingu einstaklinga þarf að veita þeim einstaklingsmiðaða og gagnreynda fræðslu sem miðar að þeirra þörfum. Ef fræðslan á að skila árangri er mikilvægt að meta þekkingu einstaklinga og fræðsluþarfir þeirra. Með þeirri vitneskju er hægt að veita þeim markvissari fræðslu og stuðning til að breyta lífsstíl sínum og heilsutengdri hegðun. \nMarkmið ritgerðarinnar er að skoða nýlegar rannsóknir sem mæla sjúkdómstengda þekkingu einstaklinga með greindan kransæðasjúkdóm. Valin rannsóknaraðferð var kerfisbundin heimildasamantekt en hún felur í sér að leitað er á kerfisbundinn hátt að rannsóknargreinum um tiltekið efni sem falla undir fyrirfram ákveðin þátttöku- og útilokunarskilyrði. Leitað var í gagnagrunni PubMed að ritrýndum rannsóknargreinum sem gefnar voru út á síðastliðnum tíu árum. Eftir heimildaleitina stóðu fimm greinar sem uppfylltu þátttökuskilyrði rannsóknarinnar. Greining á niðurstöðum þessara rannsókna sýndi að þekking kransæðasjúklinga á sjúkdómnum mætti vera betri, ekki síst í ljósi þess hve þekkingin er mikilvæg. Þekking á sjúkdómnum var betri hjá þátttakendum sem höfðu hærri tekjur og meiri menntun, sem þýðir að mikilvægt er að taka til greina lýðfræðilegan bakgrunn skjólstæðinga þegar þeim er veitt sjúklingafræðsla. \nLykilorð: kransæðasjúkdómur, sjúklingafræðsla, þekking, lífsstílsbreytingar
Source: Skemman
Author: Sigrún Vala Halldórsdóttir 1988
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7035001136
Cites: 35
Cited by:
Related to: 10