„Þú ert alltaf betur settur að veðja á það sem þú þekkir“ : upplifun stjórnenda fyrirtækja af starfsnámi háskólanema á Íslandi
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi fjallar um ávinning og upplifun stjórnenda fyrirtækja á þátttöku í starfsnámi háskólanemenda á Íslandi. Starfsnám er vettvangur sem getur verið mikill ávinningur í, fyrir alla sem að því koma, nemendur, fyrirtæki og háskólanna, sé rétt að því staðið. Starfsnemar eru oft nýttir sem auka starfskraftur í ýmis verkefni, sem dýrt væri að ráða starfsmenn í. Jafnframt öðlast þeir raunhæfa reynslu af vinnumarkaðinum á því sviði sem þeir stunda nám í. \nTilgangur rannsóknarinnar var að fá innsýn í hvað fyrirtæki telja ávinning af þátttöku í starfsnámi og hver upplifun þeirra er af ferlinu. Framkvæmd voru hálfopin viðtöl við sjö viðmælendur hjá jafn mörgum fyrirtækjum. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að fyrirtæki telja mikinn ávinning í starfsnámi fyrir alla hlutaðeigandi aðila. Fyrirtæki fá að kynnast mögulegum framtíðarstarfsmönnum sem kostar fyrirtækið minna en að taka starfsmann inn með hefðbundnu ráðningarferli og geta séð hvort viðkomandi sé sá aðili sem fyrirtækið er að leita eftir til framtíðar. Starfsnemarnir komi oft með ný sjónarmið og áherslur inn í fyrirtækið sem nýtast í starfi. Ef fyrirtæki standa vel að starfsnáminu og tekst á jákvæðan hátt að kynna fyrirtækið og vinnustaðinn fyrir nemendum getur það skilar sér oftar en ekki í góðri umfjöllun. Fyrirtæki líta á þátttöku í starfsnámi sem hluta af samfélagslegri ábyrgð. Mikilvægt er fyrir fyrirtækin að gefa nemendum tækifæri á að öðlast reynslu á vinnumarkaðinum, það leiði til betri starfsmanna framtíðarinnar. Á sama tíma er einnig mikilvægt að halda góðri tengingu við háskólasamfélagið til að styðja við þróun faggreina. Háskólar ættu að leggja enn meiri áherslu á starfsnám og skoða hvernig hægt er að bæta það enn frekar.
Source: Skemman
Author: Erna Sigríður Ómarsdóttir
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7035023221
