Áhrif hreyfingar og mataræðis á námsárangur nemenda í 10. bekk : rannsókn unnin upp úr gagnasafni HBSC
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl einkunna og heilsuvenja á meðal nemenda í 10. bekk í íslenskum grunnskólum. Unnið var úr gagnasafni íslenska hluta alþjóðlegu Health Behaviours in Schoolaged Children (HBSC) rannsóknarinnar frá skólaárinu 2013/2014. Alls svöruðu 3.618 unglingar könnunninni, þar af 1.731 stúlkur. Niðurstöður sýndu engan mun á milli kynja en fjölbreytudreifigreining sýndi marktæk tengsl á milli þess að borða óhollt og námsárangurs (F(2,2999)=12,967, p=,000). Hins vegar voru ekki marktæk tengsl milli þess að borða hollt og námsárangurs (F(2,2999)=1,838, p=,159). Samvirkni kom í ljós á milli mataræðis og námsárangurs á þann veg að eftir því sem nemendur neyttu meira af hollri fæðu urðu einkunnir hærri. Dreifigreining sýndi marktækan mun á námsárangri eftir því hversu mikla hreyfingu nemendur stunduðu utan skólatíma (F(9,3283)=19,702, p=,000). \nLykilorð: Mataræði, hreyfing, námsárangur, heilsuvenjur.
Source: Skemman
Authors: Sigurbjörg Rún Heiðarsdóttir 1988, Guðrún Ása Viðarsdóttir 1990
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Nutrition and Dietetics
Field: Nursing
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7035782074
