Áhrif náttúrlegra áreita á vinnsluminni. Umhverfissálfræði
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn er leitast við að skoða áhrif náttúrlegra áreita og skrifstofuhávaða á verkefnavinnu sem krefst vinnsluminnis. Þátttakendur (n = 48) fengu að sjá skrifstofuherbergi án og með nátttúrlegum áreitum í gegnum sýndarveruleikagleraugu en helmingur þátttakenda var einnig með skrifstofu hávaða í bakgrunni á meðan tilraunin var í gangi. Hver þátttakandi þurfti að taka Digit Span Backward Test og svara stuttum spurningalista um upplifun sína á sýndarveruleikanum. Aukalega var send út stutt könnun um mat á dálæti umhverfanna tveggja. Niðurstöður tilraunarinnar reyndust ómarktækar þar sem lítill munur var á frammistöðu einstaklinga hvort sem þeir voru með eða án náttúrlegra áreita eða með eða án skrifstofu hávaða. Einnig reyndist enginn samvirkni vera til staðar þar sem þátttakendur í umhverfi með nátttúrlegum áreitum stóðu sig ekki betur í verkefninu en þeir sem voru án náttúrlegra áreita þegar skrifstofu hávaði var til staðar.
Source: Skemman
Author: Birkir Svan Ólafsson 1991
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7035788259
