Algjört jafnræði verður á kostnað sveigjanleikans. Upplifun og sýn stjórnenda Skattsins til heimavinnu
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Á meðan Covid-19 faraldurinn reið yfir urðu fyrirtæki og stofnanir að bregðast við kröfum um sóttvarnarráðstafanir með tiltækum hætti, m.a. með því að senda starfsmenn til að vinna heiman frá sér. Ýmislegt bendir til þess að breyttar kröfur á vinnumarkaði í kjölfar faraldursins hafi leitt til þess að fjarvinna sé komin til að vera og hafa fyrirtæki og stofnanir í auknum mæli farið að bjóða upp á möguleika á fjarvinnu. Ef fjarvinna á að standa starfsmönnum til boða er mikilvægt að skipulagsheild innleiði skilgreint fjarvinnufyrirkomulag sem samræmist framtíðarsýn, stefnu og markmiðum skipulagsheildarinnar og falli að þeirri vinnustaðamenningu sem er til staðar. Að auki þarf að innleiða viðeigandi tækni og innra skipulag fjarvinnu til stuðnings. Stjórnendur hafa veruleg áhrif á hvernig til tekst að innleiða fjarvinnu og hve árangursrík hún síðan verður. Því er mikilvægt að skoða og öðlast þekkingu og skilning á því hvaða hindranir og áskoranir stjórnendur sjái helst fjarvinnu í vegi. Má með því móti betur gera viðeigandi ráðstafanir til að efla og styðja stjórnendur svo stuðningur þeirra og tilætlaður árangur af fjarvinnu náist. Hjá Skattinum hefur verið innleitt fjarvinnufyrirkomulag í formi heimavinnusamnings sem gerir starfsmönnum mögulegt að vinna heima einn dag í viku. Heimavinnusamningurinn var innleiddur árið 2021 og því komin tveggja ára reynsla á því formi þegar rannsókn fór fram. Til að rannsaka sýn og upplifun stjórnenda til heimavinnu voru tekin eigindleg viðtöl við 12 stjórnendur innan Skattsins sem eru með starfsmenn í reglubundinni heimavinnu skv. samningi. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að almennt hafi stjórnendur innan Skattsins jákvæða sýn á heimavinnu. Helsta áskorun stjórnenda felst í fyrirkomulaginu sjálfu sem virðist ekki veita nægan sveigjanleika til stjórnenda til að aðlaga fjarvinnufyrirkomulaginu að starfsemi og þörfum sinna skipulagseininga.
Source: Skemman
Author: Ragnhildur Rorí Ólafsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7035791879
